Æjj.. ég skal ekki segja.
Þú færð náttúrulega aldrei sömu tilfinningu í E23, en það er samt alveg jafn "skemmtilegt" að keyra þá bíla. Aflið mjög svipað, E23 bíllinn meira að segja kraftmeiri
En þetta nýja er langtum þægilegra, miklu hljóðlátara og alltaf þægilegra að vera í svona nýlegu.
En í forbyfarten, þá verð ég að segja það, að það er sama hvaða bíl ég hef verið að keyra, þá finnst mér ALDREI leiðinlegt að fara að keyra sexuna.
Það er einhver karakter í henni sem gerir það að verkum að hún stenst fyllilega samanburð við nýja bíla í akstursánægju. Ég get ekki sagt það sama um marga aðra BMW bíla (og fleiri náttúrulega).
Þó svo að ég hafi verið á M5 í sumar, þá var ekkert síðra að setjast inn í hákarlinn og taka rúnt þó maður hafi stigið út úr 315 Ps.
Sæmi