Eins og komið hefur fram á ég 1982 módel af E28, 518 bíl.
Hann hafði verið án númera í 5-6 ár þegar ég fékk hann í ágúst 2007.
Til þess að ég gæti farið að keyra hann, vantaði mig númeraplötur á hann í haust.
Ég ákvað að panta á hann bara nýtt sett af nýju plötunum og fékk hann númerið LA-212, eins og hann á að bera.
Sökum þess að hann er orðinn 25 ára og er núna skráður fornbíll,
þá er ég aðeins farinn að hallast í áttina að breytingu hvað númerið varðar og langar því að fá álit ykkar.
Það eru þrír möguleikar í stöðunni fyrir mig,
1. Halda mig við núverandi LA-212 númer á nýjum plötum.
2. Fá á hann steðjaplötur hjá Fornbílaklúbbnum og þá gamla númerið sem þessi bíll bar alla tíð, A-2050
3. Fá á hann steðjaplötur hjá Fornbílaklúbbnum og númer sem var á gömlu bílunum hans pabba, Ö-2000
Endilega deilið með mér skoðunum ykkar á málinu




