Ég settist uppí SUV-ið áðan en hurðin vildi ekki lokast. Rúllaði út á bensínstöð og ætlaði að redd'essu með lásaspreyi eða einhv. andskota. Fer út og skelli hurðinni svo þegar ég ætla aftur in vill hurðin ekki opnast sama hvað ég djöflaðist á fjarstýringunni. Takkinn hreyfðist en eins og húnninn gripi ekki í neitt.
Endaði með því að fara inn farþega megin og yfir miðjustokkinn. Farþega hurðin hafði þó bara hálflokast. Rúllaði yfir á aðra dælu (sú fyrsta biluð) og ætlaði sömu leið út, þeas farþega megin en viti menn, hurðin föst. Þurfti að skríða afturí til að komast út!
Ætlaði ekki að þora aftur inn í bílinn en lét mig þó hafa það og keyrði í 20 mínútur með miðstöðina í botni.
Allt eðlilegt eftir það. Keyrði bílinn aftur 7 tímum síðar og allt í góðu.
Hvaða drasl er þetta sem er ekki að virka? Eitthvað sem er tregt og marginal í frosti. Og get ég úðað einhverri drullu á það svo þetta endurtaki sig ekki???




