Jarðvélar = Motopark no more

Hér skal spjalla um BMW.

Jarðvélar = Motopark no more

Postby zazou » Sat 22. Dec 2007 12:57

Jarðvélar hafa óskað eftir því að falla frá verksamningi sínum varðandi framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar. Vegagerð ríkisins mun taka við verkinu.

Í tilkyningu frá Vilhjálmi Vilhjálmssyni verkefnisstjóra Jarðvéla segir að líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum að undanförnu hefur fyrirtækið Jarðvélar ehf verið í miklum fjárhagserfiðleikum.

"Í ljósi þess að kaupleigufyrirtæki innkölluðu til sín stóran hluta af tækjum félagsins mun félagið fara fram á það við Vegagerð ríksins að þeir taki við framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar þar sem félaginu hefur verið gert ókleift að klára framkvæmdina. Er þetta gert í fullu samráði við Vegagerð ríkisins." segir í tilkynnungunni.

Unnið verður að því næstu mánuði að fara yfir stöðu félagsins og ákvarða framtíð þess.

http://visir.is/article/20071222/FRETTIR01/71222003

Ég segi skítt með þessa Reykjanesbraut, hún verður hvort eð er kláruð með góðu eða illu. Það er pet projectið sem skiptir öllu og ég held að það megi kveðja það.
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby bimmer » Sat 22. Dec 2007 14:24

"þar sem félaginu hefur verið gert ókleift að klára framkvæmdina"

Djöfulli eru menn veruleikafirrtir :shock:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby JonHrafn » Sat 22. Dec 2007 14:47

Um leið og Topparnir tóku við JV var ekki spurning um hvort, heldur hvenær þetta færi allt til fjandans.

Reyndar hefur maður heyrt að JV hafi verið mjög illa staddir þegar þeir tóku við, spurning hvort þetta hafi verið sökkvandi fley þá þegar.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby ValliFudd » Sun 23. Dec 2007 15:30

bimmer wrote:"þar sem félaginu hefur verið gert ókleift að klára framkvæmdina"

Djöfulli eru menn veruleikafirrtir :shock:

Það virkar í þessarri frétt eins og þeir séu að kenna eigendum vélanna um þetta allt saman :lol: Ekki eins og þeir færu að taka af þeim vélar sem væri verið að borga fyrir :drunk:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 28 guests