Ég hef nú enga trú á þessu global warming kjaftæði. Þetta er ekkert frábrugðið öllu heimsendakjaftæðinu sem hefur fylgt mannkyninu frá byrjun.
Svo fyrir utan það þá er þetta bull bara til þess að umhverfisverndarsinnar (og þetta hyski sem vill helst að við bítum gras í stað þess að neyta kjöts) hafi af þessu atvinnu og tekjur og eitthvað að gera.
Vísindi eiga ekki að vera eins og einhver rétttrúnaður þar sem allir eru á sömu skoðun, og allir sem sýna fram á eitthvað annað(eins og sólgos, sólbletti, eldgos sem losa langmesta magn koltvísýrings af öllu í heiminum

) eru hálfvitar og eiga helst að halda kjafti.
Eitt að lokum. Al gore er ekki treystandi til að fara með einhvern boðskap sem hann getur ekki einu sinni farið eftir sjálfur. Maðurinn á einkaþotu(flugsamgöngur losa mest af CO2 af öllum hinum, tala nú ekki um þegar menn eru að ferðast EINIR í heilli vél). Sjálfur keyrir hann um á SUV jeppa sem hann mætti nú á í þessari mynd sinni, á meðan allir aðrir eiga helst að mynda orku með ljóstillífun og komast þannig milli staða

. Hann ferðaðist um Evrópu til að kynna einhvern umhverfisvænan bíl, en í stað þess að keyra hann sjálfur þá lét hann flutningabíl færa hann á milli meðan hann lét skutla sér milli staða á venjulegum bíl
Og þetta er svo maðurinn sem fær loftslagsverðlaun Nóbels.
ég segi bara fuck'em