Bensínverð hátt? rugl :)

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Bensínverð hátt? rugl :)

Postby ValliFudd » Thu 13. Dec 2007 15:31

Ef ykkur finnst það hátt, þá er best að lesa þetta...
http://www.visir.is/article/20071213/FRETTIR01/71213074

Samkvæmt Kyoto-bókuninni má Ísland auka almenna losun gróðurhúsalofttegunda í heild um 10 prósent frá 1990 til meðaltals áranna 2008-2012. Segir fjármálaráðuneytið ljóst að aukin losun frá samgöngum hér á landi hafi verið mun meiri en önnur aukning og því mikilvægt að draga úr henni til að markmið um heildarlosun náist.

Ráðuneytið vinnur nú að heildarstefnumótun um skattlagningu ökutækja og eldsneytis með það að markmiði að hvetja til notkunar vistvænna ökutækja, orkusparnaðar og minni losunar gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum.


Strætókerfið er sorp á íslandi, lausnin er ekki að hækka verð uppúr öllu valdi svo fólk hafi ekki efni á að aka, það er kannski betra að byrja á því að útbúa aðrar leiðir fyrir fólk í vinnuna og SVO hækka þetta uppúr öllu valdi.. Alltaf jafn gaman þegar þessir vitleysingar byrja á öfugum enda. En jú, vetni og allt það, það er það sem þeir halda að þeir séu að reyna að pína okkur yfir í.

Ein pæling.. Menga díselbílar ekki minna en bensín? Eru þeir ekki "umhverfisvænni"? Er ekki með það á hreinu en hef eitthvað heyrt minnst á það, væri ekki ráð að hætta að hækka það uppúr öllu valdi og hafa það ódýrara til að byrja með?

Óþarfi að taka 45 krónur í skatt af hverjum líter :?

60 lítrar = 2700 krónur í skatt...
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Kristjan » Thu 13. Dec 2007 15:33

Strætókerfið er fínt hérna á Akureyri, frítt.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Aron Fridrik » Thu 13. Dec 2007 15:37

það er nú líka frítt hérna..


en nenni ekki standa í því að vera hjá vini mínum síðan klukkan 23:30

heyrðu væri til í að vera lengur en þarf að þjóta til á ná strætó.. sjáumst !


það væri ömurlegt :lol:
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby siggir » Thu 13. Dec 2007 16:06

Við skulum nú ekki missa okkur í svartsýninni.

Það er vissulega hægt að hækka bensínverð og hækka álögur á bíla sem menga mikið en athugið að það er líka hægt að skattleggja vistvæna bíla og vistvænt eldsneyti öðruvísi þannig bílarnir séu ódýrari.

Innflutningstollar á flestum bílum eru 30% eða 45%. Ef tollar á vetnisbíla yrðu settir í t.d. 10% er augljóslega hagkvæmara fyrir vísitölufjölskylduna að kaupa svoleiðis bíl.

Innflutningstollar á eldsneyti eru 45 kr. á líter + vaskur. Vistvænt eldsneyti fengi sjálfsagt miklu minni toll og þ.a.l. kostar það vonandi minna. Aftur, augljós hagur fyrir fólk sem rekur svoleiðis bíl í staðinn fyrir bensín eða dísel.
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory
User avatar
siggir
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1721
Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Location: 1 2 Selfoss

Postby maxel » Thu 13. Dec 2007 16:26

Las einhverstaðar að NASA sagði að gróðurhúsaráhrifinn væru bara bull, að það væri bara meira gos í sólinni þannig að jörðin er aðeins heitari núna, jörðin er bara eins og gengur og gerist misheit á tímabilum.
Ég hef lítið trúað þessu gróðurhúsadóti.
maxel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5844
Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45

Postby flatbeat » Thu 13. Dec 2007 16:27

Ef þeir ætla að hækka bensínverðið uppúr öllu valdi til að neyða okkur til að fá okkur vetnisbíl eða rafmagnsbíl, hvað með okkur óheppna fólkið sem á ekki efni á svoleiðis bílum? Þeir eru jú flestir nýlegir, ekki endilega allir eiga efni að kaupa sér nýlegan bíl :?
Ragnar Halldórsson.

M. Benz 320CE '93 - My precious
BMW E30 316i '90 - Bíter
M. Benz 260e '87 - Seldur
Nissan Sunny :( - Pressaður :)
flatbeat
Kassabílstjóri
 
Posts: 122
Joined: Tue 24. Jul 2007 01:00

Postby StoneHead » Thu 13. Dec 2007 17:07

Sláandi munur á flugferð og bíltúr

Ef borin er saman flugferð fram og til baka frá Evrópu til Tælands og bílferðalag á heimaslóðum er magn koltvísíringsútblásturs sem fylgir flugferðinni miklu meira en koltvísíringsútblástur bílsins. Þú gætir keyrt heila 15.000 kílómetra á bílnum og samt myndir þú sleppa út minna koltvísíringsmagni en í flugferðinni til Tælands! Ferð fram og til baka með flugi frá London til Bankok veldur því að 2,78 tonn af koltvísíringi sleppa út í andrúmsloftið á hvern farþega (heimild: ClimateCare). 15.000 kílómetra akstur á bíl veldur hins vegar um það bil 2,5 tonnum af koltvísíringslosun (heimild: Environmental Strategies Research, Dagens Nyheter og Royal Institute of Technology, Stokkhólmi). Þetta er sláandi munur. Séð frá þessum sjónarhóli er ljóst að bíltúrinn er mun betri kostur fyrir umhverfið og náttúruna en aðrir kostir sem í boði eru.

Ég held persónulega að bílar séu ekki aðal orsök útblásturs koltvísíringslosun, heldur eigi flug stóran part af kökunni.
Fyrir utan ::::ALLA:::::: losunina frá hernaði,, það er einhver rosaleg tala.
StoneHead
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 260
Joined: Wed 01. Oct 2003 00:57

Postby maxel » Thu 13. Dec 2007 17:13

StoneHead wrote:Sláandi munur á flugferð og bíltúr

Ef borin er saman flugferð fram og til baka frá Evrópu til Tælands og bílferðalag á heimaslóðum er magn koltvísíringsútblásturs sem fylgir flugferðinni miklu meira en koltvísíringsútblástur bílsins. Þú gætir keyrt heila 15.000 kílómetra á bílnum og samt myndir þú sleppa út minna koltvísíringsmagni en í flugferðinni til Tælands! Ferð fram og til baka með flugi frá London til Bankok veldur því að 2,78 tonn af koltvísíringi sleppa út í andrúmsloftið á hvern farþega (heimild: ClimateCare). 15.000 kílómetra akstur á bíl veldur hins vegar um það bil 2,5 tonnum af koltvísíringslosun (heimild: Environmental Strategies Research, Dagens Nyheter og Royal Institute of Technology, Stokkhólmi). Þetta er sláandi munur. Séð frá þessum sjónarhóli er ljóst að bíltúrinn er mun betri kostur fyrir umhverfið og náttúruna en aðrir kostir sem í boði eru.

Ég held persónulega að bílar séu ekki aðal orsök útblásturs koltvísíringslosun, heldur eigi flug stóran part af kökunni.
Fyrir utan ::::ALLA:::::: losunina frá hernaði,, það er einhver rosaleg tala
.

Og beljuprump
maxel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5844
Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45

Postby fart » Thu 13. Dec 2007 18:15

Já, skrítið að beljurnar séu ekki komnar með mengunarbúnað. Þær eru að freta okkur inn í sumarið endalausa.

En þetta er gert þannig hérna að það er skattur á bíla eftir því hvað þeir menga mörg grömm af CO^2.

Ég er með reikningana hérna á borðinu og skal gefa ykkur dæmi.

Renault Espace 3.0L Diesel 177 hestöfl (tveggja tonna bíll) € 498 pr year
BMW M5 V10 5.0L Petrol 500 hestöfl (1800kg bíll) € 797 pr year
BMW M3 3.0 L I6 295 hestöfl (1460 kg bíll) € 285 pr year
BMW 525d 3.0L diesel 177hestföl (1600kg) € 204 pr year

Þetta eru s.s. "bifreiðagjöldin" sem ég borga, augljóslega mest fyrir M5, þarnæst fyrir renaultinn, og svo minnst fyrir M3.

En þið sjáið líka hvað hinn ótrúlega praktíski sparibaukur 525d er að kosta lítið.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Geirinn » Thu 13. Dec 2007 18:18

fart wrote:Já, skrítið að beljurnar séu ekki komnar með mengunarbúnað. Þær eru að freta okkur inn í sumarið endalausa.

En þetta er gert þannig hérna að það er skattur á bíla eftir því hvað þeir menga mörg grömm af CO^2.

Ég er með reikningana hérna á borðinu og skal gefa ykkur dæmi.

Renault Espace 3.0L Diesel 177 hestöfl (tveggja tonna bíll) € 498 pr year
BMW M5 V10 5.0L Petrol 500 hestöfl (1800kg bíll) € 797 pr year
BMW M3 3.0 L I6 295 hestöfl (1460 kg bíll) € 285 pr year
BMW 525d 3.0L diesel 177hestföl (1600kg) € 204 pr year

Þetta eru s.s. "bifreiðagjöldin" sem ég borga, augljóslega mest fyrir M5, þarnæst fyrir renaultinn, og svo minnst fyrir M3.

En þið sjáið líka hvað hinn ótrúlega praktíski sparibaukur 525d er að kosta lítið.


€ 797 á ári..... er ég svona lélegur í stærðfræði eða er þetta þvílíkt há tala ?
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby fart » Thu 13. Dec 2007 18:21

æ menn eru alltaf að kvarta og kveina yfir háu bensínverði á Íslandi. Líterinn í t.d. .de er ekki mikið ódýrari. Hann kostar c.a. 1.20 euro hér (minnir mig) sem er 110kall c.a. (gæti verið hærri man það ekki alveg) en hann er uþb 1.40 euros í de og alveg upp í 1.60 við miðjarðarhafið.

Já og að eiga M5 á Íslandi kostar hvað (fyrir utan kaupin á bílnum) 20k í bifreiðagjöld og 100þús kall í tryggingar? er það ekki c.a. rétt.

Hérna kostar c.a. 3000 evrur á ári að tryggja hann + tæplega 800 í "bifreiðagjöld". Það er ekki nema rétt tæpur 350þúsund kall á ári bara fyrir að láta hann standa.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby zazou » Thu 13. Dec 2007 18:32

Það væri nú gaman að fá að heyra frá Sæma flugmanni eitthvað um eyðslu Boeing vélar. Ég heyrði einhversstaðar 8 tonn af eldsneyti á tímann við flugtak og klif, 2 tonn í krúsi fyrir 757... getur einhver staðfest (eða hrakið)?
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby Aron Andrew » Thu 13. Dec 2007 18:34

zazou wrote:Það væri nú gaman að fá að heyra frá Sæma flugmanni eitthvað um eyðslu Boeing vélar. Ég heyrði einhversstaðar 8 tonn af eldsneyti á tímann við flugtak og klif, 2 tonn í krúsi fyrir 757... getur einhver staðfest (eða hrakið)?


Svipað og á stóru fraktskipunum...
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby arnibjorn » Thu 13. Dec 2007 18:40

Aron Andrew wrote:
zazou wrote:Það væri nú gaman að fá að heyra frá Sæma flugmanni eitthvað um eyðslu Boeing vélar. Ég heyrði einhversstaðar 8 tonn af eldsneyti á tímann við flugtak og klif, 2 tonn í krúsi fyrir 757... getur einhver staðfest (eða hrakið)?


Svipað og á stóru fraktskipunum...


Stóru fraktskipin eru að eyða um 250 tonnum á dag.

Og þá er ég að tala um stærstu skipin.... krinum 8000TEU.
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Kristjan PGT » Thu 13. Dec 2007 19:04

íslensk stjórnvöld hljóta að vera að fíflast! Hverskonar vitleysa er þetta! Við erum með gjörsamlega vistvænt rafmagn og upphitun á húsin okkar eru einnig 100% vistvæn! hversu mikið af Hummer H1 með 454 BBC (7L chevy mótor) þyrftum við að keyra til að ná uppí jafn mikla mengun og t.d. sami fjöldi af ameríkönum sem aðeins hjóla og labba.

Þetta er ekki allt falið í bílunum...miklu minna en allt!


Þetta er bara della og sýndarskapur fyrir öðrum þjóðum.

Og víst að við erum að tala um stjórnmál getur þá einhver útskýrt fyrir mér afhverju hjúkrunarfólk, kennarar og lögreglumenn fá ekki rassgat borgað og heilu deildirnar innnan heilbrigðisgeirans eru felldar niður á meðan sinfonía Íslands er starfsrækt og þetta helvítis tónlistarhús niður á hafnarbakka er í byggingu??? Helvítis snobbhæns, sýndarmennska og útlendingasleikjur!

*plaff*
Kristjan PGT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1610
Joined: Sat 03. May 2003 18:34

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 4 guests