Ég ætla að uppfæra cameruna fyrir jólin. Fór út í búð áðan og sá að möguleikarnir eru helvíti margir. Allt frá örvélum og upp í alvöru.
Maður þarf greinilega að stilla sig af varðandi kröfur og verð. Ágætis DVD gæða vélar eru að detta á svona 500 euros með Hard-drive fítus, nettar og fínar, svo getur maður farið í HD vélar (1080) frá svona 800 evrum og uppúr.
Það var óneitanlega ein sem stóð uppúr, og hún var líka næstum sú dýrasta..
JVC EVERIO GZ-HD7
Helvíti impressive vél, kostar 1500 euros út úr búð hér en er hægt að fá á c.a. 1100 evrur online.
Is it worth it.. eða er eitthvað annað sem maður á að skoða?

