Jæja. þá er ''nýji'' mótorinn kominn ofaní bmw-inn hjá mér . þetta er semsagt e34 525 með m50b25 mótor. okey. málið er. að bílinn fer í gang og allt það. Gengur fyrst á 1500 snúnigum. svo dettur hann eftir smástund í eðlilegan snúning. svo þegar hann er byrjaður að hitna þá fer hann að hoppa frá 1000-1500 endalaust. og hættir því stundum í smástund. sérstakklega þegar hann er stopp í eðlilegum snúning. og ég ýt á bensíngjöfina þá fer hann beint aftur í 1500 snúninga og heldur sér þar þangað til að hann byrjar að hoppa aftur á milli.
Þegar ég svissa á bílinn. þá kemur upp á tölvuni ( kú´lwhasserstand ) Og ( Sensor Oelstand ) Samt er alveg nóg olía á bílnum. ég er nýbúinn að skipta um olíu og síu og næg olía er á ´bílnum. . svo er annað . ég er nýbúinn að skipta um Vatnsdælu og af einhverjum ástæðum fer bílinn að hita sig. hann heldur sér í réttum hitta í svona korter - 20 mín svo fer hann að hita sig. samt er búið að skipta um Vatnslás. vatnsdælu. og það er ekkert loft inná kerfinu. ( mig reyndar grunar um að þessi vatnslás sé ónýtur sem var settur í veit það þó ekki. en það er aðalega þessi snúningur og þetta ( Sensor Oelstand ) sem er að stressa mig. hefur einhver hérna lent í einhverjum svipuðum vanda ? eða getið bent mér á hvað gæti verið að ?. Með fyrirfram þökk Hlynur.

