Ég er hérna í prófalestrinum að láta mig dreyma. Ég á E36 318 sem er frekar latur. Hafa margir verið að turbo-væða bílana sína hérna á klakanum ?
Svo er málið. Á þessum mótor, alveg stock, hvað væri óhætt að blása inn á hann? 6psi ? prófa bara þangað til hann gefst upp
Held samt að hagstæðasta og þægilegasta lausnin sé að fara strax í öflugri mótor og sjá hvort það væri bara ekki nóg í bili. Það væri samt gaman að heyra frá ef einhverjir hafa verið að leika sér að þessu







