Var að setja hvítar díóðuperur í angel eyes hringina. Virkilega töff bláleitur bjarmi af þeim ... eeeeeeeen maður sér nákvæmleg hvar perurnar eru ,, alveg hvíííítur punktur í hringnum þar.
Perurnar sem voru í voru með máluðum toppi, silfruðum, eins og þeim hefði verið dýft aðeins ofan í silfraða málningu eða lakk. Er málið að gera það við díóðu perurnar?? Ef svo hvaða efni ætti maður að nota? Hryllir nú samt við tilhugsuninnni að rífa ljósin úr enn einu sinni og rífa úr 12 stykki perur og setja í aftur :þ

