Ég er búinn að fá jákvæðar undirtektir við skipti á þessum bíl:
http://www.pistonheads.co.uk/sales/273248.htm
Þegar hann sendi mér póst með frekar jákvæðu svari varð ég eitthvað skrítinn
Ég held ég geti skipt slétt á mínum Audi sem er 1997 ekinn 93þús mílur. Hann er svipað mikils virði þó hann sé nýrri og minna keyrður.
Málið er að 328i bíllinn er ekki með þjónustubók en hann er búinn að skipta um marga slithluti sem er alltaf gott.
Hvaða upplýsingar hafið þið um þessa bíla/mótora. Mig langar rosalega í BMW aftur og þessi finnst mér virkilega reffilegur. Langar samt ekki að vera alveg blindur svo mig langar að vega og meta kosti/galla áður en ég tek ákvörðun um að halda áfram með þetta.
Edit: Felgurnar einar og sér slaga langleiðina upp í það sem ég borgaði fyrir Audinn þannig að maður ætti kannski ekki að hafa áhyggjur


