Eftir erfiðar ákvarðanir þá sló ég til og keypti eitt stykki blæjubíl
Stolnar upplýsingar:
BMW-Diamantschwarz-Metallic
Ekinn 195þúsund
Innfluttur í Júní 2005 af Smára Lúðvíkssyni.
Beinskiptur, 5 gíra.
Vél:
-M20B25
-6Cyl
~170hestöfl/5800snúningum (stock)
~222newtonmetrar/4300 @ rpm
Hröðun:
0-100km ~ 8.5 sek
Breytingar:
-Hartge flækjur
-Búið að hreinsa mikið úr pústkerfinu. Sándar MJÖG VEL.
-Lækkaður sirka 60/40
Búnaður:
-Hiti í sætum
-ABS
-Rafmangsrúður
-Check tölva
-Blóðrautt leður
-Rafmagn í speglum
-4 sæta
-14" Basketweaves á nýjum dekkjum
-17" Sumar surtur
Útlit:
-Nýlega sprautaður
-Búið að fjarlægja BMW merkin
Ég er vel sáttur með hljóðið og útlitið en þá má alltaf bæta við aflið

Núna um helgina var bíllinn bónaður með Einzeit bóni sem er BARA gott bón og lagað farþega hurðina en það var ekki hægt að opna hana en það ku hafa verði samlæsingarmótorinn sem var fastur í lás. Svo var lyklasylenderinn settur í bílstjórahurðina en hann datt úr eftir ævintýra verkefni fyrri eiganda

Svo virkar ekki rafmagnið í speglunum en ég á eftir að grúska betur í því ásamt því að opna hanskahólfið

Núna undir kvöld var svo borið á leðrið og lýtur það nú einkar vel út

Einnig setti ég nýjan þéttikant á annað afturljósið en það lak inní skottið meðfram ljósinu

Kíkt var á rafmagnsloftnetið en það bara hreinlega neitar að virka

Svo lekur olía af pönnunni enda er örfín sprunga á henni
Annars fór ég alveg vel svalan rúnt í gærkvöldi með toppinn niðri í þriggja stiga frosti og var það alveg þess virði
Planið:
Henda bílnum í geymslu yfir vetrartíman
Kaupa nýja blæju fyrir næsta sumar
Kaupa læst drif !!!
Laga olíulekan
Taka sætin úr og djúphreinsa gólfteppið ásamt því að sandblása og sprauta sleðana f. sætin
Skipta um alla vökva á bílnum
Síðast en ekki síst, njóta þess að keyra bílinn með toppinn niðri næsta sumar
Svo af eitthverjum ástæðum þá rekst vinstri afturfelgan utan í demparan og boddýið, er eitthver sem að veit hvað gæti orsakað það ?? Er það kannski eitthver fóðring ??
Hér eru svo myndir a la Danni en fyrirsæturnar eru ég og litla systir enda var aalgjört skítaveður úti !



Ein mynd af leðrinu fyrir perrana
