Stebbtronic wrote:Knud wrote:Stebbtronic wrote:
Bíddu nú við, kannast maður ekki við kauða úr vélskólanum??
Hehe jú það passar, sá einmitt þennan E21 á föstudaginn, veit samt ekki alveg hver þú ert
Nei við erum held ég ekki saman í neinum fögum, þekkti bara andlitið úr skólanum. Við erum greinilega nokkrir hérna úr Vélsk. ég Stebbi, Orville(Hrannar), alpina.b10(Gunni Sean), Mr_Gold(Örvar), svo er maxel líka í skólanum veit ég, gaman að þessu og massa respect fyrir flott project hjá þér, ekki allir sem að leggja í svona
Já það er slatti af vélskólastrákum hérna, ég veit nú hverjir allir eru nema þú og maxel. Þetta er rosalega lítill heimur
En já takk fyrir
Annars í kvöld þá er búið að henda mótornum ofan í, tengja rafkerfið, festa drifskaft, festa skiptinguna og grúska pínu, þetta var þokkalegt vesen sem hafðist á endanum. Tjakka og slaka hægri vinstri, tjakka undir skiptinguna. Tók eitthvað af myndum og ég á eftir að henda þeim upp á næstunni, á morgun verður svo lokafrágangur, festa frambitann, tengja ljósin og setja pústið undir ýmsar hlífar og svona dútl. Búið að vera rosa áhugavert og ég er búinn að hafa mikið gaman að þessu. Fékk líka fína aðstoð í kvöld, tveir strákar frá höfn. Þvílíkir dugnaðarforkar
En ég kveð að sinni, ætla að næla mér í smá svefn fyrir átök morgundagsins

En djöfull er lítið um pláss í húddinu á þessum bíl