Ég er að dunda mér þessa dagana í Rennsportfelgen. Þær voru orðnar frekar sjúskaðar, fallið á flesta boltana og ein felgan köntuð.
Planið er að taka alla þrjá hluta í sundur, pólera kantinn vel, Powdercoating á miðjurnar og kaupa nýja bolta.
Þær ættu vonandi að líta þokkalega út eftir veturinn
Ef einhverjir hafa gert þetta áður væri gott að fá ráð hvað má og hvað má ekki.
Það sem ég nota er:
Túpa af autosol, sem gefur rosalegan gljáa
Raspar
Sandpappír 320,600,1000,2000 vatns
Massavél
Köntun, fyrir
Köntun, eftir
Eitt sem ég er að spá, eftir því sem maður hjakkast meira á afmörkuðum svæðum með autosol, þá glansar meira en um leið finnst mér eins og allar misfellur í álinu sjáist betur. Er ég að yfirgera þessu eða er eina leiðin að fara alla leið með sandpappír ??
THE RS/RM þráður:
http://forums.vwvortex.com/zerothread?cmd=print&id=1022742



