Óheppin að hringja í skakkt númer.

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Óheppin að hringja í skakkt númer.

Postby Kristjan » Fri 23. Nov 2007 13:54

Ég sakna svo rosalega að hafa Capone á morgnana að hjartað mitt blæðir blóði. Af hverju geta þeir ekki verið með RVK FM á Akureyri?

http://b2.is/?sida=tengill&id=263700
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Hannsi » Fri 23. Nov 2007 14:01

haha djöfullsis snilld :lol:
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby bjahja » Fri 23. Nov 2007 14:15

Besti þáttur síðan tvíhöfði var og hét, ertu semsagt ekki að vinna við tölvu Kristján?
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Kristjan » Fri 23. Nov 2007 14:22

bjahja wrote:Besti þáttur síðan tvíhöfði var og hét, ertu semsagt ekki að vinna við tölvu Kristján?


Nope
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Axel Jóhann » Fri 23. Nov 2007 14:24

Hahahaha snilld.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Postby gunnar » Fri 23. Nov 2007 15:24

:shock: :lol: :shock: :lol: :shock: :lol:

Þetta er alveg drepfyndið maður :lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby bjahja » Fri 23. Nov 2007 15:30

Þetta er heldur ekki í fyrsta skipti sem þeir gera þetta, Capone bræður pulluðu svipað um daginn með Dodda lítla.
Þannig að ef þið hringið í vitlaust númer veriði þá alveg viss um að það er ekki 563-9000 :lol:
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby siggik1 » Fri 23. Nov 2007 18:11

mér fannst nú orkuveitan fyndnari en þetta er samt gott :D
User avatar
siggik1
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1445
Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Location: Reykjavík

Postby Elnino » Fri 23. Nov 2007 18:16

Tekið af www.visir.is

Dagbjört í Frostfiski búin að fá afreikningana

Dagbjört Hannesdóttir hjá Frostfiski lenti í Capone bræðrum og Gillzenegger. Breki Logason skrifar:

„Þeir komu í pósti í gær," segir Dagbjört Hannesdóttir hjá Frostfiski í Þorlákshöfn um afreikningana sem hún var að bíða eftir frá fyrirtækinu Nastar.

Netverjar hafa legið í hláturskasti yfir símahrekk sem Capone bræður í samvinnu við Gillzenegger gerðu á útvarpsstöðinni Reykjavík Fm í síðustu viku.
Strákarnir voru með opinn símatíma þegar Dagbjört hringdi inn og hélt hún hefði náð sambandi við fyrirtækið Nastar. Strákarnir voru fljótir að grípa það á lofti og sendu hana síðan á milli sín í rúmar fimm mínútur.
Hún var að reyna að fá afreikninga senda frá fyrirtækinu en endaði með því að skella á eftir að engin niðurstaða hafði fengist í málið.

„Auðvitað finnst mér þetta mjög fyndið en það er aldrei gaman að láta gera grín í sér. Sérstaklega ekki þegar þetta vindur svona upp á sig. Ég þori varla að hringja lengur úr vinnunni og kynna mig," segir Dagbjört mjög hress á því.

Hún segist ekki einu sinni hafa vitað að þessi útvarpsstöð væri til en veit þó hver Gillzenegger er. „Ég veit hver hann er en hef nú ekkert verið að stúdera hann."

Dagbjört segist aldrei áður hafa hringt í Nastar og það var því ekki nema von að hún þekkti ekki raddirnar. „Ég gat ekkert verið að æsa mig enda aldrei átt samskipti við þetta fyrirtæki áður. Ég hef reyndar talað við hana Unni einu sinni í síma en ég gat ekki farið að efast um að þetta væri hún," segir Dagbjört sem getur ekki annað en hlegið af þessari uppákomu.

Dagbjörtu finnst þó púkalegt að strákarnir hafi ekki hringt og tilkynnt henni að um símahrekki hefði erið að ræða.

„Ég fór til yfirmannsins og sagði þetta Nastar fyrirtæki vera stórfurðulegt. Hann náttúrulegaskyldi ekki neitt í neinu. Síðan sendi ég Unni póst og hún gat ekki svarað mér, þannig að þetta gat alveg passað allt saman."




Hahaha talandi um umfjöllun sem þessi hrekkur hefur fengið.
BMW 330 metch 2002
Bmw e-36 323 coupe - 1997 - SELDUR
User avatar
Elnino
Getawaybílstjóri
 
Posts: 798
Joined: Fri 15. Apr 2005 14:18
Location: Þorlákshöfn City!


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 69 guests