Jæja, þá er kvikindið komið í gang Haldiði að hann hafi ekki rokið í gang í fyrsta starti. Og engir error coeds í tölvunni nema að það vanti rúðupiss( því húddið er ekki á ) Þetta er búið að taka svoldinn tíma en aðallega útaf því ég er bara búinn að vera einn í þessu öllu, nema núna í kvöld fékk hjálp frá félaga mínum og það gekk töluvert betur fyrir sig þannig.
Ein mjög góð af mér að herða drifskaftið.
Og svo vídeó af gangsetningunni:
Svo förum við núna í allra síðasta fráganginn, henda pústinu undir, húddinu á og svona smotterí eins og hlífar undir mótorinn.
P.s. ein spurning, master cylenderinn í húddinu, er hann ekki fyrir bremsukerfið og kúplinguna?
En samt sem áður á hann við HITAVANDAMÁL að stríða :/ fór næstum í rauða hitastigið áðan, og svo brotnaði afloftunartappinn á vatskassanum og það rauk þar út í smá stund. Ætla rétt að vonna að heddpakkningin sé EKKI að fara.
Ef þú ert með auka kælivatnstankinn lausann haltu honum uppi á meðan kerfið lofttæmir sig, bmw kerfin eru ömurlega miðað við aðra tengundir,
enn þetta hefur gert trickið á erfiðum bílum hjá mér.
og opna aftöppunarskrúfuna ofan á vatnslásnum,
ég prufaði líka að bora í gegnum vatnslásinn ofarlega til að leyfa loftun í gegn .
With great challenges comes great engineering. Gunnar Reynisson
Ekki alveg svona auðvelt að lofttæma eins og að nota loftskrúfuna. Þarft eiginlega að fylla á hann með hosuna út af vélinni að aftan aftengda, finnur ábyggilega nánari leiðbeiningar á netinu, en þetta er svolítið tricky ef allt vatn er tæmt af véliini.
Bara EKKI láta vélina hitna upp að rauða strikinu, bara ávísun á sprungið/verpt hedd!
Tók smá hring á honum áðan, og allt virkar eðlilega nema að hann svona var að nálgast rétt hitastig, þá kemur tölvan með viðvörun, #ENGINE OIL PRESS+ og stoppa náttúrulega STRAX svo opna ég húddið og finn þar að hosurnar frá vatnsdælu eru allar kaldar og tómar þannig bíllinn fær enga kælingu, og svo sé ég þessa kunnulegu olíu lekandi frá heddinu.
Þannig ég þarf að skipta um heddpakkningu og vatnsdælu.