E39 straumlaus -vifta virðist ganga stöðugt bakvið útvarpið

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

E39 straumlaus -vifta virðist ganga stöðugt bakvið útvarpið

Postby Þórður Helgason » Mon 05. Nov 2007 19:04

Varð straumlaus um daginn.
Lagaði geyminn, sem var orðinn alveg dauður,.
Nú er hann kominn í og ég leitaði að ástæðu. Mér virðist vifta ganga bakvið útvarpið eða digital miðstöðina.

Kannast einhver við svona viftugang? Eða hvað veldur þessu suði/brúmmi?

Maður tekur eftir þessu strax, svolítið áberandi, þegar allt annað er dautt?

Með kveðju

Þórður á Akureyri.
2002 árg 1969 rip
2002 árg 1971 rallýbíll (læknabíllinn) rip?
2000CA árg 1968 í langtímahvíld.
735i árg 1980 seldur.
318i árg 1989 seldur.
540i árg 1996. Frábær vagn. Seldur.
Þórður Helgason
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 476
Joined: Wed 20. Nov 2002 23:38
Location: Akureyri

Postby Bjarki » Mon 05. Nov 2007 21:31

Final stage resistor (viðnám) giska ég á.
miðstöðin fer í gang í tíma og ótíma.
Algeng bilun, auðvelt að skipta um þetta.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

straumleysi

Postby Þórður Helgason » Tue 06. Nov 2007 07:21

Bjarki wrote:Final stage resistor (viðnám) giska ég á.
miðstöðin fer í gang í tíma og ótíma.
Algeng bilun, auðvelt að skipta um þetta.


Takk, þetta er nokkuð líklegt, miðstöðin hefur verið frekar sjálfstæð og óþekk undanfarið.

Þórður
2002 árg 1969 rip
2002 árg 1971 rallýbíll (læknabíllinn) rip?
2000CA árg 1968 í langtímahvíld.
735i árg 1980 seldur.
318i árg 1989 seldur.
540i árg 1996. Frábær vagn. Seldur.
Þórður Helgason
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 476
Joined: Wed 20. Nov 2002 23:38
Location: Akureyri

Postby Brútus » Tue 06. Nov 2007 13:49

Það er alltaf eitthvað hljóð í minni viftu þó að ég sé búinn að drepa á bílnum.
Það hættir samt eftir nokkurn tíma en ég hef einmitt pælt í því hvort þetta sé eðlilegt. Samt blæs hún ekki bara eitthvað svona rafmagnshljóð í henni.
User avatar
Brútus
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Sat 25. Aug 2007 02:56

12V

Postby Þórður Helgason » Wed 07. Nov 2007 12:45

Brútus wrote:Það er alltaf eitthvað hljóð í minni viftu þó að ég sé búinn að drepa á bílnum.
Það hættir samt eftir nokkurn tíma en ég hef einmitt pælt í því hvort þetta sé eðlilegt. Samt blæs hún ekki bara eitthvað svona rafmagnshljóð í henni.


Já, þetta er nefnilega ekki blásaramótorinn sjálfur, virðist vera lítil vifta eða eitthvað þannig bakvið digitalborðið í miðstöðvarstjórninni...
Er kannski alltaf svona, ég bara var að leita að rafleka og fór að spá í þetta.

kv Þórður
2002 árg 1969 rip
2002 árg 1971 rallýbíll (læknabíllinn) rip?
2000CA árg 1968 í langtímahvíld.
735i árg 1980 seldur.
318i árg 1989 seldur.
540i árg 1996. Frábær vagn. Seldur.
Þórður Helgason
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 476
Joined: Wed 20. Nov 2002 23:38
Location: Akureyri

Postby raxions » Thu 08. Nov 2007 23:25

Ég hef átt í stökustu rafmagnsvandræðum með minn E38 í nokkra mánuði, geymirinn tæmist alltaf og ekkert kom í ljós í leit að útleiðslu hjá B&L og TB.

Svo heyrði ég í dag nákvæmlega eins hljóð og þið hafið lýst: mjög lágt, heyrist þegar búið er að drepa á bílnum og læsa honum og svona kurrandi rafmagnshljóð bak við miðstöðvarconsolið. Ég sat inni í bílnum í 25 mín þangað ttil ég missti þolinmæðina, því hljóðið hverfur ekki...
User avatar
raxions
Kassabílstjóri
 
Posts: 156
Joined: Mon 05. Mar 2007 00:58

Postby Brútus » Fri 09. Nov 2007 02:46

Mér finnst þetta óþolandi. Sérstaklega ef að maður er með farþega og fólk er kannski að tala saman eftir að maður er búinn að drepa á og þetta litla óþolandi suð er alltaf í bakgrunn. verður pirrandi þó að það sé lágt. Svo sko líður mér stundum eins og að það sé bara einhver inni í viftunni hjá mér því að ekki nóg með þetta litla suð eftir að búið er að drepa á bílnum heldur stundum þá fer hún að tísta svona bara uppúr þurru og þá með svona 0.5 sec millibili og það hættir annarsvegar ef að ég slekk á viftunni og líka ef að ég hækka hana aðeins þá hættir það.
Er ekki hægt að smyrja eitthvað unit þarna fyrir bakvið ?
User avatar
Brútus
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Sat 25. Aug 2007 02:56

Postby Mánisnær » Fri 09. Nov 2007 04:19

Brútus wrote:Mér finnst þetta óþolandi. Sérstaklega ef að maður er með farþega og fólk er kannski að tala saman eftir að maður er búinn að drepa á og þetta litla óþolandi suð er alltaf í bakgrunn. verður pirrandi þó að það sé lágt. Svo sko líður mér stundum eins og að það sé bara einhver inni í viftunni hjá mér því að ekki nóg með þetta litla suð eftir að búið er að drepa á bílnum heldur stundum þá fer hún að tísta svona bara uppúr þurru og þá með svona 0.5 sec millibili og það hættir annarsvegar ef að ég slekk á viftunni og líka ef að ég hækka hana aðeins þá hættir það.
Er ekki hægt að smyrja eitthvað unit þarna fyrir bakvið ?



Hmm.. Prófaðu að biðja manneskjuna um að fara, en vertu kurteis. Hún gæti skemt útfrá sér ef þú æsir hana upp, þúveist ekkert hvernig gaur þú ert að díla við, ef það virkar ekki talaðu þá bara við hann Bjarka. Hann veit flest
AggiM5 wrote:hi eg a felgur sem passa undid 39 . crom 8.5 brei mer miðiju ringgin og mer dekk lika vittur komma ad skoda?
User avatar
Mánisnær
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1770
Joined: Tue 22. Mar 2005 12:31
Location: Vesturbæ Reykjavíkur

Postby ValliFudd » Fri 09. Nov 2007 12:32

Ég kannast við þetta hljóð úr mínum bíl, en það er svo lágt að ég heyri það ekki nema eftir að ég slekk á bílnum. Og þá bara í svona 5 sek og þá hættir það.. :)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Brútus » Fri 09. Nov 2007 16:13

Já ég er farinn að halda að þetta tengist miðilsfundunum sem að fyrri eigandi hélt reglulega inni í bílnum. Kannski að maður ætti að hafa samband við sálarrannsóknarfélgaið og láta þá kíkja á þetta. Það væri þá í fyrsta skitpi sem einhver færi með bílinn sinn í viðgerð þangað held ég.
User avatar
Brútus
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Sat 25. Aug 2007 02:56


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 22 guests