Keypti mér Benz

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Keypti mér Benz

Postby Logi » Sun 04. Nov 2007 00:34

Ákvað að fá mér ekki BMW í þetta skiptið og fyrir valinu varð E420 sem kom af færibandinu í apríl 1994. Bíllinn kom úr tolli í gær og sá Smári um að kaupa bílinn og senda heim. Kann ég honum bestu þakkir fyrir viðskiptin.

Helstu upplýsingar:

Akstur 167.000 (góð þjónustubók frá upphafi fylgir).

Svartur samlitur, fjarlægðarskynjarar framan og aftan, original 17" AMG 7,5 að framan (225/45) og 8,5 að aftan (245/40).

Svart leður, leðurstýri, auto miðstöð, rafmagn og minni í báðum framsætum, rafmagn í stýri og rafmagnsgardína í afturglugga.

Hleðslujafnari og H&R gormar.

Lítur vel út og virðist vera í góðu standi.

Myndir sem ég tók í skúrnum áðan (kem kannski með betri seinna):
Image
Image
Image
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby Aron Andrew » Sun 04. Nov 2007 00:36

Vígalegur 8)

Er þetta sama boddý og E500 hans Sveinbjarnar?
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Logi » Sun 04. Nov 2007 00:39

Aron Andrew wrote:Vígalegur 8)

Er þetta sama boddý og E500 hans Sveinbjarnar?

Já, fyrir utan brettin og stuðarana...
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby Einarsss » Sun 04. Nov 2007 10:47

E500 er meira "Wide" body.. e420 eru samt alveg vel eigulegir bílar ... 286hp ef mig minnir rétt
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Benzari » Sun 04. Nov 2007 12:06

Glæsilegt, til hamingju 8)
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby Eggert » Sun 04. Nov 2007 13:35

einarsss wrote:E500 er meira "Wide" body.. e420 eru samt alveg vel eigulegir bílar ... 286hp ef mig minnir rétt


279hp... og virkar fyrir allan peninginn.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Alpina » Sun 04. Nov 2007 14:38

einarsss wrote:E500 er meira "Wide" body.. e420 eru samt alveg vel eigulegir bílar ... 286hp ef mig minnir rétt


500E var búinn til hjá hjá PORSCHE í Stuttgart
Skulum vitna í daprar minningar frá þeim tíma er PORSCHE stóð á vendipunkti þess að ganga illa,,

Mercedes setti þeim ALGERLEGA úrslita kosti,, þeas að búa til þennann bíl
eða þeir myndu gera það sjálfir,, án vafa hefur ætt Ferdinands hugsað með semingi hvort að það aðhylltist sportbílaframleiðanda að búa til FÓLKSBÍL

Hvað sem því leið þá bjó fyrir tækið til þennann 1/2 Porchse
og er bíllinn byggður á 124 útliti á STERUM
notaður var R129 (( 500 SL)) vélarbiti og bremsur og skýrir það WIDEBODY brettin að framan ,, einnig var afturbrettið ......flett...... út
Vélin er talin eitt af gersemum V8 véla sem nokkurn tíman hafa verið búnar til í veröldinni ,, 5.0 L 326 ps // 480 nm code M 119
þessi mótor er byggður upp úr samblandi af M117 (( 500 SE /L/C)) og
928 Porsche v8
sami mótor er í 400/420 nema 4.0 L 280 ps // 400 nm

5.0 togar 400 nm við 1500 rpm 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8)
Að mínu mati er þetta einn ÆÐISLEGASTI Mercedes-Benz sem framleiddur hefur verið skilur sig algerlega frá öllum .. TAXA .. bílunum

gefinn 6.0 0-100 og fer í 267 km á raunhraða ef v-max er gert óvirkt
ath:: það er eingöngu gírinn sem ræður að bíllinn komist ekki hraðar
ég á 2.65 drif ((2.82 oem )) og þá fer bíllinn í 280 raunhraða
sem er gríðarlega gott ennþann dag í dag

svona bílar eru ekki jafnliprir og E34 en þetta er ódrepandi og MAGNAÐAR auto-bahn bifreiðar
W124 coupe er einnig gríðarlega smekklegur bíll en hann er bara til 4-6 cyl

Skora á ykkur að prófa svona W124 bíl

Ps,, Þar sem Þýskir bílar hafa ráðið ríkjum hjá fjölskyldu Loga og hann sjálfur búinn að eiga E34 M5.. pabbi hanns á E420 og átti 500 SE og fleiri M-B
þá hlýtur það að segja eitthvað ,, :o :o afhverju W124 :o :o


Minnir mig á vísu,,

Hálfan Porsche hef ég nú
hurðir fjórar lokast
hestöfl yfir hundruð þrjú
helling áfram mokast

Góðar stundir
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby íbbi_ » Sun 04. Nov 2007 15:20

ég stóð í þeirri meiningu að m119 mótorinn í 400/420 væri 4.2l en gæti alveg haf rangt fyrir mér,

þessir w124 bílar eru ótrúleg apparöt.. ég er nú heldur búin að sjá hvernig þessir bíla standa sig í gegnum vinnuna, þeir eru jú orðnir mökkgamlir í útliti og akstri.. en standa samt fyllilega fyrir sínu..

mér reyndar hefur aldrei fundist sona 420 bílar vera mjög srpækir en þetta togar og togar og á nóg inni

þetta virðist vera flott eintak.. til hamingju
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Alpina » Sun 04. Nov 2007 15:34

íbbi_ wrote:ég stóð í þeirri meiningu að m119 mótorinn í 400/420 væri 4.2l en gæti alveg haf rangt fyrir mér,

þessir w124 bílar eru ótrúleg apparöt.. ég er nú heldur búin að sjá hvernig þessir bíla standa sig í gegnum vinnuna, þeir eru jú orðnir mökkgamlir í útliti og akstri.. en standa samt fyllilega fyrir sínu..

mér reyndar hefur aldrei fundist sona 420 bílar vera mjög srpækir en þetta togar og togar og á nóg inni

þetta virðist vera flott eintak.. til hamingju


Mundu það Ívar,, smooth delivery en þetta er ekki síðra ef ekki eilítið sprækari en E34 540
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby zneb » Sun 04. Nov 2007 16:52

hmm, eilítið sprækari en 540?

Svona bíll hafði mig allavega ekki þegar ég var á gamla bsk e34 535i og ekki heldur félaga minn sem átti 2000 eclipse v6 og við 2 vorum alltaf hnífjafnir.

Gæti reyndar hafa verið e-ð lala eintak, en svona fóru þau skipti sem við áttum run við þennan bíl.

En 420 er án vafa mun meira smooth og togar betur, en engin spyrnugræja.

Annars virðist þetta vera mjög flottur bíll, nákvæmlega eins og ég myndi vilja hafa hann. Virkilega fíla þessa benza, w124.
Stebbi
Mongoose SX 6.5

Mercedes Benz 190e sportline ´92 "sec wannabe" seldur
Kawasaki 650sx stand up jet-ski selt
BMW e-34 ///M5 3,6 seldur
zneb
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 289
Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Location: Austurríki

Postby íbbi_ » Sun 04. Nov 2007 16:59

hmm ég vill meina að 540 bíllin vinni betur.. en það er bygt á tilfinningu
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Sezar » Sun 04. Nov 2007 17:29

Það verður bara að taka rönn til að sannreyna þetta :wink:
En ég prufaði aðeins 540i bílinn hans ArnarsF hérna á spjallinu, og vá sá tosaðist áfram :shock:
User avatar
Sezar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2731
Joined: Sun 02. Nov 2003 23:40

Postby zneb » Sun 04. Nov 2007 17:49

Já bíllinn hans Arnars er bara að virka!

Tók rönn við hann á mínum ///M5 kvöldið sem ég fékk bílinn og hann tók mig, of auðveldlega!

Reyndar ekki búinn að læra almennilega inná minn, master cylenderinn fyrir kúplinguna að stríða mér (=ekki nógu góður milli gíra) og fannst bíllinn ekki vera að virka alveg eins og hann ætti að gera. Jájá, afsakanir afsakanir :lol:

En það verður tekið annað rönn á næstunni þar sem minn fer loksins að verða kominn í stand eftir heddpakningaskipti ásamt fleiru$$$... lofar allavega góðu...
Stebbi
Mongoose SX 6.5

Mercedes Benz 190e sportline ´92 "sec wannabe" seldur
Kawasaki 650sx stand up jet-ski selt
BMW e-34 ///M5 3,6 seldur
zneb
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 289
Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Location: Austurríki

Postby Mr. P » Sun 04. Nov 2007 19:02

Ég á e34 540ia og vinur minn átti e400 árg 93.. samkvæmt bókinni á minn að skila 286 hp og 400nm en e400 á að skila 278 hp og líka 400nm.

Við tókum nú til gamans létt rönn einn daginn. Ég á mínum 540 byrjaði við aftur stöðarann hans og ég var rétt kominn með frammdekkin mín að bílstjóra hurðini hjá honum þegar að við slógum af á 160+ kmh.

Þannig var nú munurinn.
Pétur Freyr
Mr. P
Kassabílstjóri
 
Posts: 178
Joined: Sun 19. Aug 2007 20:22
Location: kópavogur

Postby Alpina » Sun 04. Nov 2007 19:05

Mr. P wrote:Ég á e34 540ia og vinur minn átti e400 árg 93.. samkvæmt bókinni á minn að skila 286 hp og 400nm en e400 á að skila 278 hp og líka 400nm.

Við tókum nú til gamans létt rönn einn daginn. Ég á mínum 540 byrjaði við aftur stöðarann hans og ég var rétt kominn með frammdekkin mín að bílstjóra hurðini hjá honum þegar að við slógum af á 160+ kmh.

Þannig var nú munurinn.


held að þetta sé einmitt á slíkum nótum ,, E400 er sprækari off the line
en 540 vinnur kannski betur á ferðinni
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 74 guests