Föstudagsgrín

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Föstudagsgrín

Postby einson » Fri 12. Sep 2003 09:40

Miðaldra maður í Ameríku keypti sér nýjan BMW til þess að halda upp á það að konan hans fór frá honum. Fór svo í bíltúr um kvöldið til að sýna sig og sjá aðra. Topplúgan var dregin niður og vindurinn blés í þær hárlýjur sem ennþá prýddu höfuð hans. Hann gaf hressilega í og þegar hraðamælirinn sýndi 180 sá hann skyndilega að baki sér lögguna með blikkandi ljós.
Hmrmff.... þeir ná mér aldrei á BMW og hann gaf í ... og gaf aftur í.. Þá tók skynsemin völdin og hann sagði við sjálfan sig “Hvað er eiginlega að mér?” .. hægði á og keyrði út í vegarkantinn.
Löggan kom að honum, leit á ökuskírteinið og grandskoðaði bílinn. “Þetta hefur verið langur vinnudagur” sagði hann “ ég er að ljúka vaktinni og það er föstudagur. Ég nenni ekki meiri pappírsvinnu, og hef engan áhuga á yfirvinnu, - ég gef þér séns. Ef þú getur komið með góða afsökun fyrir þessum ofsahraða sem þú varst á, betri en ég hef nokkru sinni heyrt, þá læt ég þig sleppa í þetta sinn.”
Kallinn hugsaði sig um nokkra stund og segir loks: “Kellingin stakk af fyrir nokkrum dögum með lögreglumanni. Ég var skal ég segja þér svo hræddur um að þú værir að skila henni.....”
Góða helgi” sagði löggan.
einson
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 10
Joined: Thu 11. Sep 2003 10:43
Location: Reykjavík

Postby Gunni » Fri 12. Sep 2003 10:57

þessi er alltaf öflugur ;)
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby bjahja » Fri 12. Sep 2003 12:27

:lol: :lol: :lol:
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby BMW 318I » Fri 12. Sep 2003 16:27

tíhíhí :D
'98 Image 316i
User avatar
BMW 318I
Getawaybílstjóri
 
Posts: 537
Joined: Mon 28. Apr 2003 11:05
Location: Kópavogur


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 66 guests