Ég var að enda við að skrá mig inn hér enda festi ég kaup á BMW 325i 2004 árgerð síðasta föstudag. Ég er að flytja þennan bíl inn frá Bandaríkjunum og kemur hann ekki með vetrardekkjum. Því var ég að velta fyrir mér hvaða vetrardekk maður ætti að fá sér? Bíllinn er með Sport pakkanum og er því núna á 225/45-17 dekkjum. Ég veit nánast ekkert um dekk en heyrði því fleygt að það væri betra að fara á 16" og jafnvel 225/55 eða 225/65 fyrir veturinn. Er ekki einhver snillingur hérna sem getur ráðlagt mér aðeins?
Kærar þakkir fyrirfram!
