Hvað er háspennukefli á ensku? Það er eflaust farið í Focusnum mínum og ég ætla að leita mér upplýsinga um þetta.
Check engine ljósið kom á hjá mér og hann byrjaði að ganga ferlega illa, grútmáttlaus og leiðinlegur hægagangu, einnig kemur skrítin lykt af útblæstrinum. Ég talaði við gaur hjá Brimborg sem sagði að eflaust kæmi ekkert annað til greina en háspennukefli.
Kannast einhver hérna við þetta vandamál í Focus? Er þetta dýr viðgerð?

