Er að leita mér að vetrardekkjum og langaði að fá smá umræður í gang varðandi verð og gæði
Er að skoða núna hvort það myndu borga sig að taka dekk að utan af t.d tirerack Michelin X-Ice 225/50/16, þau eru að mér sýnist vera fá ágætis dóma og kosta um 535$ komin til shopusa og gera þá um 75 þúsund miðað við gengið í dag.
Hóflegt verð?
Vita menn um góð dekk á betra verði?
Sá líka í blaðinu 24 stundir að sólning var með hæsta umfelgunar verðið eða 6300kall. Nokkuð örrugt að ég fari ekki aftur þangað. Enda brá mér þegar ég fékk reikninginn hjá þeim síðast.


