by Bjarki » Tue 09. Oct 2007 21:41
Einfalt að ná hurðaspjöldunum af. Smá trikk að ná plastinu í kringum húninn af, þarft að lemja á járn sem færist þarna inni, svo hann losni. Tekur plasttappa úr í hliðinni á hurðinni til að komast í þetta, best að lýsa þar inn með ljósi. Erfitt að skýra í orðum.
Rúðuupphalarinn að aftan er losaður með því að smella miðjunni út. Einnig erfitt að skýra í orðum, en það er nóg að fara með skrúfujárn þarna á milli og þrýsta út.
Bjarki
E39: 540iA '98