Monitor

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Monitor

Postby Kristjan » Mon 08. Oct 2007 11:15

Ég var að lesa þetta blað um daginn og rakst á grein um tölvuleikinn Heavenly Sword skrifaða af Dóra DNA. Hann hefur áður skrifað um tölvuleiki fyrir DV og einhverja aðra miðla. Nema hvað,,,,

http://www.monitor.is/pdf/Monitor-1tbl-Web.pdf

mæli með því að þið kíkið á þetta og segið mér


er í lagi að senda svona hluti frá sér í prent?


Vælubíllinn er á standby, ekki hafa áhyggjur. :lol:
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby ValliFudd » Mon 08. Oct 2007 11:56

Heavenly Sword mun gera það sama fyrir
Playstation 3. Hann er eins og 1969 Chevy, með 396 headpakkningu,
Bruce Springsteen í framsætinu étandi eplaböku, drekkandi ískaldan
Budweiser og spilandi á þrjá rafmagnsgítara í einu. Svo einfalt er það.
:hmm:


EDIT: Hér er þetta allt..


Ævintýra og bardagaleikurinn Heavenly Sword kom út í gær.
Leikurinn er aðeins fáanlegur á Playstation 3 og mun eflaust
laða marga kaupendur að tölvunni. Hann er í einu orði sagt
svakalegur, í tveimur orðum sagt svakalega svakalegur.
Einhver svakalegasti tölvuleikur síðari ára lenti í verslunum á
klakanum í gær. Leikurinn heitir Heavenly Sword og er nokkurs konar
blanda af ævintýra og bardagaleik, ekki ósvipað og God of War leikirnir
vinsælu. Leikmenn fara í hlutverk ofurskutlunnar Naríkó, sem getur
ekki aðeins myrt menn samviskulaust eins og að drekka vatn, heldur
gæti hún líklega náð frama innan „soft-core” klámiðnaðarins, ef hann
þrífst einhversstaðar ennþá. Saga leiksins er auðvitað afar hæpin, en
menn verða að vera tilbúnir að setja sig í réttar stellingar. Naríkó er
hluti af fornum ættbálki sem hefur öldum saman varðveitt hið himneska
sverð sem býr yfir kosmískum kröftum. Sá sem veldur sverðinu glatar
hægt og bítandi lífi sínu, en aðeins guðir geta valdið því. Þegar hinn illi
King Bohan, sem minnir mest á handrukkara í meðferð reynir svo að ná
sverðinu, á Naríkó engra annarra kosta völ en að grípa til vopnsins og
vona það besta. Sverðið sjálft býður upp á bardagaatriði sem myndu
fá Jet Li til þess að rífa úr sér miltað. Sverðið er hægt að nota sem
tvö minni sverð, tvær keðjur eða eitt risastórt sverð, eftir því hvernig
leikmaðurinn er stemmdur. Heavenly Sword er eins og frumleg, „soft
core” klámmynd eftir Tarantino. Hann gerist í „flashbacks” og því sérstök
upplifun að spila hann. Þá minnir umhverfi leiksins helst á himnaríki,
sem hrapað hefur niður í helvíti. Skemmst er frá því að segja, að fáir
leikir standast Heavenly Sword snúning þegar það kemur að grafík og
spilun. Allt að þúsund harðsvíraðir stríðsmenna geta birst á skjánum
í einu, og það er náttúrulega ekkert grín. Kyle Shubel, sem framleiðir
leikinn, segir að Playstation 3 sé eina tölvan sem mögulega gat keyrt
hann. Þá býður leikurinn einnig upp á skemmtilegan fítus, en menn
geta stjórnað örvum, fallbyssukúlum og öðrum skeytum með því að
hreyfa fjarstýringuna, svona eins og þegar Nintendo Wii God of war sló
eftirminnilega í gegn á Playstation 2 og tryggði tölvunni réttan sess í
hjörtum tölvuleikjaelskenda. Heavenly Sword mun gera það sama fyrir
Playstation 3. Hann er eins og 1969 Chevy, með 396 headpakkningu,
Bruce Springsteen í framsætinu étandi eplaböku, drekkandi ískaldan
Budweiser og spilandi á þrjá rafmagnsgítara í einu. Svo einfalt er það.
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby siggir » Mon 08. Oct 2007 13:55

Bruce Springsteen sökkar :roll:
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory
User avatar
siggir
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1721
Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Location: 1 2 Selfoss

Postby Stanky » Mon 08. Oct 2007 15:35

siggir wrote:Bruce Springsteen sökkar :roll:


Sammála.
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby Kristjan » Mon 08. Oct 2007 17:28

Ævintýra og bardagaleikurinn Heavenly Sword kom út í gær.
Leikurinn er aðeins fáanlegur á Playstation 3 og mun eflaust
laða marga kaupendur að tölvunni. Hann er í einu orði sagt
svakalegur, í tveimur orðum sagt svakalega svakalegur.
Einhver svakalegasti tölvuleikur síðari ára lenti í verslunum á
klakanum í gær. Leikurinn heitir Heavenly Sword
og er nokkurs konar
blanda af ævintýra og.....


Þarna tvítekur hann setninguna.


Þá býður leikurinn einnig upp á skemmtilegan fítus, en menn
geta stjórnað örvum, fallbyssukúlum og öðrum skeytum með því að
hreyfa fjarstýringuna, svona eins og þegar Nintendo Wii God of war sló
eftirminnilega í gegn á Playstation 2
og tryggði tölvunni réttan sess í
hjörtum tölvuleikjaelskenda.

Er hann þá að meina Nintendo Wii útgáfuna af God of war eða playstation 2 útgáfuna?

Beh?

Já og lokaorðin eru alveg kostuleg, "svo einfalt er það" eftir þessari bullsetningu.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Turbo- » Mon 08. Oct 2007 17:45

hvar fæ ég svona 396 headpakkningu á mr2 ?
Image
User avatar
Turbo-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 898
Joined: Sat 18. Mar 2006 17:17

Postby noyan » Mon 08. Oct 2007 17:50

Þar sem Dóri er ágætis félagi minn þá benti ég honum á þennan þráð, hann vildi koma þessu fram..

Frá Dóra DNA. Afsakið með bullið í Heavenly Sword textanum. Ég var alveg jafn sjokked og þið, ekki mín mistök heldur umbrotsmannsins.

Varðandi lokaorðin.....þá verðið þið bara að skilja skensið.
Magnús
noyan
Getawaybílstjóri
 
Posts: 580
Joined: Sat 06. Nov 2004 18:20

Postby Kristjan » Mon 08. Oct 2007 18:12

Þar höfum við það, gott að heyra. Venjulega hefur maður ekki séð svona steypu frá Dóra.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 45 guests