Þar sem að ég er með eindæmum latur vill ég endilega forvitnast um litanúmerin í M-logoinu. Hvernig þetta kemur hleðslutækjum við......ég er að smíða mér hleðslutæki úr áli, verður geymt hérna heima þangað til að næsti BMW verður keyptur.
Logo-ið sem um ræðir er þetta klassíska sem klístrað er á marga E30 M3 og jafnframt algengt á myndum af M1. Einnig hef ég átt bágt með að velja lit á tækið, hallast einna helst að hvítum en flest annað kemur til greina
Mun setja inn myndir við fyrsta tækifæri, geri með þó fyllilega grein fyrir því hversu ógeðslega "ekki áhugavert" þetta project er



