

bjahja wrote:Ég fór um daginn í testið og ég má gefa, þannig að ég ætla að skella mér í næstu viku
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
Íslandsmet í blóðgjöfum
Í gær, fimmtudaginn 4. október 2007, komu alls 194 blóðgjafar í Blóðbankann á Snorrabraut 60. Blóðbankabíllinn við Fjarðarkaup í Hafnarfirði fékk 43 blóðgjafa í heimsókn og á starfsstöð okkar á Akureyri komu 19 blóðgjafar. Samtals eru þetta 256 blóðgjafar og í gær var því sett nýtt Íslandsmet í blóðsöfnun á einum degi.
Núna á hádegi föstudags, eru blóðbirgðir Blóðbankans uþb. 700 einingar af rauðkornum (einingar af blóði).
"Viljum við koma á framfæri þakklæti til allra blóðgjafa, sem hafa með þessum hætti tryggt öryggi sjúklinga á Íslandi. Bestu þakkir fyrir að bregðast skjótt og vel við ákalli Blóðbankans. Við þökkum einnig fjölmiðlum sem hafa sýnt mikilvægan stuðning við þessar aðstæður. " segir í frétt frá Blóðbankanum
Users browsing this forum: Google [Bot] and 33 guests