tölva - talva umræða

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby Gunni » Fri 05. Sep 2003 20:42

PULSA kallinn minn
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Djofullinn » Fri 05. Sep 2003 20:47

Pylsa er bara asnalegt maur :)
Pulsa er málið!
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby ta » Fri 05. Sep 2003 20:52

pylsa og tómatsósa.

eitt enn sumir segja smúla, ekki spúla.

hehehehe
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45

Postby jth » Fri 05. Sep 2003 20:55

ta wrote:eitt enn sumir segja smúla, ekki spúla.


Nákvæmlega, þetta kannast ég við! Hvaðan í ósköpunum kemur sögnin "að smúla"? Sögnina "að spúla" er hægt að finna í öðrum germönskum málum, en hvaðan kemur þetta "smúlerí"? :lol:
User avatar
jth
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Fri 29. Nov 2002 17:49
Location: NY

Postby Haffi » Fri 05. Sep 2003 20:59

hmm ég smúla alltaf :P en kemur þó fyrir að ég spúla !
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Heizzi » Fri 02. Apr 2004 04:07

Jæja, þetta tók kannski smá tíma en hér er allavega svarið komið :)

Tekið af vísindavef Háskóla Íslands:

Orðið spúla „skola með vatni" er tökuorð úr dönsku en þangað er það sótt úr miðlágþýsku spûlen, spôlen. Orðið er til í nútíma þýsku sem spülen í sömu merkingu. Spúla er ekki gamalt í málinu en þekkist frá því snemma á 20. öld.

Smúla „skola, hreinsa (þilfar á skipi, gólf, borð í fiskvinnsluhúsum)" virðist ekki eiga sér samsvörun í nágrannamálum og vera innlend hliðarmynd við spúla. Hugsanlega getur smúla í merkingunni „smygla" hafa valdið því að hliðarmyndin varð til.



Ég er sáttur við þessa útskýringu enda hef ég alltaf hallast að því að segja spúla.
Heiðar
BMW 320i E36
Nissan Sunny 1,4LX - Seldur
User avatar
Heizzi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Location: Kópavogur

Postby jth » Fri 02. Apr 2004 05:13

Heizzi wrote:Jæja, þetta tók kannski smá tíma en hér er allavega svarið komið :)


Glæsilegt, góð rannsóknarvinna!

En segðu - hvað í ósköpunum fékk þig til að muna eftir þessum, tja - afar rykfallna þræði? :wink:
User avatar
jth
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Fri 29. Nov 2002 17:49
Location: NY

Postby gunnar » Fri 02. Apr 2004 08:28

Ég segi ALDREI pylsa, pulsu á mitt brauð takk..

en ég hengi hvern sem er sem segir talva! :twisted:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Heizzi » Fri 02. Apr 2004 14:01

jth wrote:
Heizzi wrote:Jæja, þetta tók kannski smá tíma en hér er allavega svarið komið :)


Glæsilegt, góð rannsóknarvinna!

En segðu - hvað í ósköpunum fékk þig til að muna eftir þessum, tja - afar rykfallna þræði? :wink:


svona er það þegar maður getur ekki sofnað, var búinn að lesa allt nýtt á spjallinu og fór þá skoða gömul innlegg frá mér og rakst á þessa bráðskemmtilegu umræðu :)
Heiðar
BMW 320i E36
Nissan Sunny 1,4LX - Seldur
User avatar
Heizzi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Location: Kópavogur

Postby Kristjan » Fri 02. Apr 2004 14:06

GHR wrote:Fyrst að allir eru komnir off topic þá ætla ég líka :wink:

Þetta er bara eins og orðið pylsa/pulsa. Skrýtið fólk (og sveitafólk) segir pylsa en venjulegt fólk segir pulsa :wink: :lol:
Nei, án gríns þá sagði ég alltaf talva þangað til eitthver ''guest'' á spjallinu varð reiður og skammaði mig fyrir að segja talva en ekki TÖLVA :roll:



Svo ég vitni nú í Otto West....."ASSHOOOOOOOOLE"
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Haffi » Fri 02. Apr 2004 16:03

hehehe þessi djöfull vaknaður :)
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Schulii » Sun 04. Apr 2004 18:55

er ekki hægt að leggjast í rannsóknarvinnu með orðið TALVA líka??

ekki að ég sé hrifinn af notkun þessa orðs þá fer ég ekkert ofanaf því að þetta er orðið rétt að segja þetta ;)
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby Haffi » Sun 04. Apr 2004 19:16

mig langar að slá fólk í andlitið þegar það segir TALVA ! :twisted:
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Heizzi » Sun 04. Apr 2004 19:19

Schulii_730i wrote:er ekki hægt að leggjast í rannsóknarvinnu með orðið TALVA líka??

ekki að ég sé hrifinn af notkun þessa orðs þá fer ég ekkert ofanaf því að þetta er orðið rétt að segja þetta ;)


Það er greinilega hægt að finna svör við öllu á Vísindavef Háskólans:

Tölva

Þegar búa þurfti til íslenskt orð yfir enska heitið 'computer' varð orðið tölva fyrir valinu. Í desember árið 1964 eignaðist Háskóli Íslands fyrstu tölvu sína, IBM 1620. Orð þótti vanta yfir gripinn og er Sigurði Nordal prófessor eignað orðið tölva sem hann setti fram 1965. Áður höfðu menn notast eitthvað við orðið rafeindareiknir. Tölva er myndað eftir orðum eins og slöngva og völva. Rétt mynd er því tölva sem beygist svona:

et. ft.

nf. tölva tölvur

þf. tölvu tölvur

þgf. tölvu tölvum

ef. tölvu tölva


Benda má á greinina „Um orðið tölva“ eftir Baldur Jónsson í Sagnaþingi helguðu Jónasi Kristjánssyni. I: 33-44. Reykjavík 1994.

Í þessu svari felst að íslenska nýyrðið er tölva en ekki "talva".


Pylsa

Orðið pylsa er tökuorð í íslensku, líklegast úr dönsku pølse. Í nýnorsku og færeysku þekkist myndin pylsa, í sænsku pölsa og í sænskum mállýskum pylsa. Það þekkist í málinu frá því á 17. öld. Miðað við uppruna er rétt að skrifa pylsa með -y- en orðmyndin pulsa er framburðarmynd, hugsanlega fyrir áhrif frá dönsku.

Og ekki orð um það meir :)
Heiðar
BMW 320i E36
Nissan Sunny 1,4LX - Seldur
User avatar
Heizzi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Location: Kópavogur

Postby force` » Sat 26. Jun 2004 11:39

gunnar wrote:Ég segi ALDREI pylsa, pulsu á mitt brauð takk..

en ég hengi hvern sem er sem segir talva! :twisted:


talvan mín er alveg steikt.
pirraður núna ?
hvað er eiginlega að því að segja talva ?
mér finnst vera mikilvægari vandamál að velta sér uppúr
eins og td, hvernig litlu gelgjurnar eru hreinlega að rústa íslenskunni
á netinu. Og hverjum er ekki sama þó fólk segir talva eða tölva.
Poteitó, potató.
There's rear wheel drive, and there's wrong wheel drive......
SheDevil
Chevy Suburban 1981 í skúrnum
Chevy Suburban 1982 hættur í löggunni
E32 750il 1991 farinn
E32 750il 1990 seldur
E32 750il 1994 stolið
E23 735i 1984 pressaður
User avatar
force`
Getawaybílstjóri
 
Posts: 721
Joined: Fri 23. Jan 2004 11:37

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 18 guests