Aftengja dagljós?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Aftengja dagljós?

Postby Zeus » Tue 02. Oct 2007 19:43

Ég fór fyrst í Aðhald (held ég að það heiti) í Klettagörðunum þegar ég leysti bílinn út og fékk endurskoðun 10. Það var sett út á filmur og ljósabúnaðinn. Ég er búinn að rífa filmurnar úr og fór síðasta föstudag að reyna aftur að fá fulla skoðun.

Og þar sem ég misskildi manninn algjörlega í fyrstu, þá hélt ég að hann hefði veriða að tala um annað. Ég fór í Frumherja í Reykjanesbæ síðasta föstudag. Og þá var mér sagt að ég fengi ekki fulla skoðun. Vegna þess að það er ''kana'' dagljós búnaður á bílnum. Það kviknar ljós að framan en ekki að aftan. Þetta er svona á mörgum ameríku bílum. Þeir væru ekki nógu sáttir við þetta og að ég fengi ekki fulla skoðun. Hann hafði séð þetta oft og þetta væri ekkert mál að redda. Hann sagði mér að skjótast í Skiptingu og biðja þá að aftengja þetta.

Komst ekki þangað á föstudaginn en ég fór í gær. Þar komst ég að því að þeir gætu ekki gert þetta fyrir mig. Og að ég þyrfti helst að tala við B&L eða TB. Hringdi í TB í gær og þeir sögðu mér að fara í B&L.

Hringdi í morgun í B&L og þar ræddi ég við einhvern starfsmann og hann sagðist þurfa að stofna mig í kerfinu og það gæti tekið smá tíma. Hann myndi hringja aftur seinna um daginn. Hann var ekkert búinn að reyna að hringja svo ég reyndi að ná aftur í hann.

Komst að því að það var brjálað að gera og mikil veikindi á verkstæði. Reyndi oft að ná inn en ekkert tókst, bað svo um að skilja eftir skilaboð.

Ég er í fríi á morgun í vinnunni og langar ofboðslega að reyna að klára þetta. Eða allavega redda þessu dagljósi.

Var búinn að heyra að bíllinn væri settur í tölvu og þessu kippt út. Var líka búinn að heyra að það sé hægt að finna relay og aftengja þetta þannig.

Ógeðslega langur texti um ekki neitt en getur einhver komið með góð ráð. Hringi auðvitað strax aftur í fyrramálið í B&L en tekur það ekki þokkalegann tíma að fá pantaðann tíma á verkstæði hjá þeim?

Fyrsta reynslan mín á B&L og veit ekki hvað er eðlilegur biðtími á verkstæði. Vill losna við þessa endurskoðun helst á morgun en það er bjartsýni mín einungis :roll:

EINHVER? :lol:
Last edited by Zeus on Tue 02. Oct 2007 20:06, edited 1 time in total.
User avatar
Zeus
Kassabílstjóri
 
Posts: 247
Joined: Sun 10. Dec 2006 14:45

Postby Lindemann » Tue 02. Oct 2007 19:51

sennilega er ekki hægt að gera þetta með góðu móti nema tengja við tölvu og breyta uppsetningunni þar.........í eldri og einfaldari bílum er þetta mun einfaldara.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby slapi » Tue 02. Oct 2007 19:54

það þarf að tengja bílinn við tölvu og kóða þetta út.
B&L er með óvenjustuttan biðtíma á verkstæði meðaðvið önnur umboð 2-3 vikur er óvenjulega lítið. En hringdu niðureftir í fyrramálið og skoðaðu hvort sé hægt að redda þessu meðan þú bíður.
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Postby Zeus » Tue 02. Oct 2007 20:04

slapi wrote:það þarf að tengja bílinn við tölvu og kóða þetta út.
B&L er með óvenjustuttan biðtíma á verkstæði meðaðvið önnur umboð 2-3 vikur er óvenjulega lítið. En hringdu niðureftir í fyrramálið og skoðaðu hvort sé hægt að redda þessu meðan þú bíður.


Já það er einmitt það sem ég er að vona :wink: Veit einhver beint símanúmer á verkstæði :wink:

Ég hélt að TB gæti gert þetta. Eru þeir ekki með réttu tölvu í þetta?
User avatar
Zeus
Kassabílstjóri
 
Posts: 247
Joined: Sun 10. Dec 2006 14:45

Postby Lindemann » Tue 02. Oct 2007 20:07

ég held að TB geti bara lesið af villukóða og svoleiðis, en ekki kóðað eða breytt uppsetningum í tölvunni.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby Zeus » Wed 03. Oct 2007 11:26

Ég á pantaðann tíma hjá B&L 26. október. Fór svo í Frumherja að útskýra þetta vesen og fékk frest til 06.11.07 sem sagt Endurskoðun 11 :oops:
User avatar
Zeus
Kassabílstjóri
 
Posts: 247
Joined: Sun 10. Dec 2006 14:45


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests