Sælir fræðingar,
Hef verið að taka eftir hljóði sem kemur í bílnum hjá mér (tegund sést í undirskrift) þetta er ssk bíll og þetta er þannig að þegar bíllinn er kominn á sæmilega ferð 60 km/klst eða ofar og á sléttu malbiki heyrist þetta best (þá heyrist ekki dekkjahljóð), þá heyrist svona suð í bílnum og ég er nokkuð viss að það komi aftan frá. Þetta er í raun hljóð eins og hjólalega sé farin og vildi athuga hvort menn hefðu einhverja skoðun á því að þetta væri eitthvað annað eða hvort þetta væri hjólalega...ætti maður ekki að finna örlítið slag í hjólinu þegar bíllinn er uppá lyftu ef þetta er hjólalegan.
Endilega kommentið á þetta.

