Einn ágætur

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Einn ágætur

Postby basten » Wed 26. Sep 2007 21:30

Íslensk hjón röltu inn á á málverkasýningu í Nútímalistasafninu í Glasgow. Þau staðnæmdust við eitt málverkanna sem þau botnuðu ekkert í. Verkið sýndi 3 kolsvarta og kviknakta karlmenn sitjandi á bekk í almenningsgarði. Það sem vakti mesta undrun þeirra var að svarti maðurinn í miðið var með skærbleikt tippi en hin tvö voru svört.

Safnvörður veitti hjónunum athygli og gerði sér grein fyrir því að þau voru að velta fyrir sér merkingu verksins. Hann hélt nærri korters-fyrirlestur um hvernig verkið endurspeglaði ofuráherslu á hinn kynferðislega þátt í lífi og umhverfi svarta kynstofnsins í hvítu samfélagi. Og bætti því við að ,,sá bleiki" væri jafnframt vísbending um sérstöðu samkynhneigðra á meðal karlmanna.

Þegar safnvörðurinn hafði lokið tölunni og snúið sér að öðum sýningargestum gaf sig skoskur maður á tal við hjónin og spurði hvort þau vildu vita hvað þetta verk táknaði?
Þau spurðu hvers vegna hann ætti að geta skýrt það betur en safnvörðurinn?
Vegna þess að ég er höfundur verksins", sagði hann. Í raun og veru eru þetta ekki svertingjar! Þetta eru einfaldlega 3 skoskir kolanámumenn.
Eini munurinn á þeim er sá að þessi í miðjunni skrapp heim í matartímanum!
Siggi
basten
Getawaybílstjóri
 
Posts: 860
Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Location: Reykjavík

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 43 guests