Þar sem að ég seldi 330 bílinn um daginn þá þurfti ég að fá mér eitthvað ódýrt og þægilegt til þess að vera á í vetur. Fór á stúfana að leita að BMW/Benz á temmilegu verði og fann þennan gullfallega E36 hérna á kraftinum. Ótrúlega heill og vel með farinn bíll.
Þetta er semsagt 1997 árgerðin af 320Ia með 6cyl vélinni. Hann er frekar plain en hefur þó topplúgu og kastara sem setja ágætis svip á bílinn. Eins er hann með rosalega fínt fendergap að framan sem virðist vera algengt í E36. Ég keypti strax undir hann 16" felgur hérna í gegnum kraftinn og það gerði algjörlega gæfumuninn fyrir útlitið á þessum bíl.
Í samanburði við 330 bílinn er þetta ekkert mjög spennandi en ósköp þægilegur og myndarlegur bíll. Sérstaklega finnst mér innréttingin í þessum bílum falleg og þá sérstaklega miðað við árgerð.
Vinnslan er líka merkilega góð semog 6cyl hljóðið. En eyðslan sýnist mér vera jafnvel aðeins meiri en var í 330 bílnum
Mynd á gömlu felgunum:
En svona er hann núna:
