bimmer wrote:
Gaman út á braut en heimferðin var nú ekki jafn ánægjuleg.
Keyrði fyrir aftan Tóta brautarstarfsmann á leiðinni heim og þar sem
vegurinn breikkar í 2 akreinar í Hafnarfirði ætla ég að lulla framúr
honum hægra megin við hann. Er alveg að koma að honum þegar
hann vippar sér yfir á hægri akrein og neglir niður beint fyrir framan
mig. Mér tekst með naumindum að komast hjá því að keyra á hann
og beygi til vinstri til að komast þeim megin við hann. Hann gerir sér
lítið fyrir og vippar sér á vinstri akreinina og hægir enn á sér. Í fyrra
skiptið hélt ég að hann hefði kannski ekki séð mig en þegar hann
gerir þetta aftur er alveg ljóst að þetta var viljandi.
Stoppa bílinn og þá kemur hann út úr bílnum öskrandi og æpandi yfir
því að ég hafi verið að bera út rógburð um hann á netinu (tengist
því þegar Tóti og félagi hans neituðu að borga að fullu fyrir tuningu
í vor).
Allavega hann kemur alvega að bílnum þar sem ég sit enn í honum með
hurðina hálfopna. Hann sparkar í hurðina sem lendir síðan á mér.
Ég fer út úr bílnum og þar stöndum við face to face og hann er alveg
að tapa sér út af þessu máli. Ég sagði honum eins og ég hef sagt áður
að boltinn í því máli sé hjá honum og hafi verið frá því í vor.
Eftir nokkuð þras hrækir hann í andlitið á mér og þá var mér nú alveg
nóg boðið og löðrunga hann með flötum lófa. Hann byrjar þá strax að
reyna að berja mig með krepptum hnefa. Ég næ að víkja mér undan og
ríf í hann og hendi honum til hliðar. Held að hann hafi þá fattað að hann
var ekkert að fara að lemja mig og hóf því í stað að hóta mér því að
hann kæmi með félaga sína til að ganga í skrokk á mér og allri minni
fjölskyldu. Eftir það stekkur hann að RNGTOY og sparkar aftur vel
fast í bílstjórahurðina þannig að hún beyglast enn meira.
Eftir þetta hleypur hann í burtu og forðar sér á bílnum og er næstum
búinn að keyra á bílinn hans Dóra sem hafði komið að þessu og lagt
fyrir framan okkur.
Allavega... ég er búinn að kæra Tóta til lögreglunnar og búinn að gefa
skýrslu sem og vitni.
Manni hreint og beint blöskrar þetta rugl og það hlýtur að vera meira
en lítið í ólagi hjá Tóta þessa dagana.
Afhverju ert þú alltaf fyrstur til að DRULLA yfir fólk á netinu!
Og Alltaf talandi um að Tóti og Aron Hafi ekki borgað allt,,,
Má ég þá ekki tjá mig með það að maðurinn sem drullar yfir fólk um að það skuldi pening hér og þar og síðan NEITAR þessi maður að borga fyrir að fá að keyra uppá braut hjá okkur,,,,, Sá maður Gengur undir nafninu Þórður onno,,, eða var það nono
Þú BAUÐST til að gera heimasíðuna á sínum tíma og síðan þegar Herra X var á leiðinni til landsins buðumst við til að lána þér skúrinn í nokkra daga,,,
Ekkert um að þú ættir að fá að keyra frítt og síðan varst þú bara með stæla þegar ég reyndi að rukka þig uppá braut fyrir framan helling af fólki
Þú vælir og vælir á netinu með það að tóti og aron skuldi þér pening,,, enn samt geturðu ekki rætt þetta við þá,,, þú varst uppá braut í dag í 4 tíma og samt talaðirðu ekki við tóta um þetta þá,,, í staðinn stóðst hringeftirhring leikfangið þitt á eftir tóta og keyrðir alveg uppí rassgatinu á honum,,,,!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Það er algjör óþarfi að spila sig alltaf svona stóran og FARA MEÐ ÞETTA Á netið,,,,,