Aftara swaybarið farið í á medium stillingu og bíllinn er eins og límdur gott sem við malbikið. Tók rúnt niðrí klettagarða, á stóraplanið og fór að prófa bílinn. Var að taka þokkalega krappar beygjur á 60-65 og hreyfðist ekki nema ég fór yfir miðjuna á planinu þar sem það er nokkurskonar bunga. Og þetta með ónýtum afturdekkjum

Svo tók ég líka hring í kringum grandatorgið áðan og var bíllinn bara solid í hliðaræfingum.
Fer sennilega á morgun að versla ný afturdekk því þetta er bara hættulegt í bleytu.. ekkert mál að missa afturendann þegar maður á síst von á því.
næsta mál á dagskrá er sennilega að rífa aftursætin úr ásamt teppinu og gá hvernig fílingurinn verður þannig,
þarf líka að komast að hvar botninn lekur því bílstjóragólfið blotnar ef það rignir. Ég ætla giska á það sé einhver tappi að leka frekar en það sé ryð gat einhversstaðar því þar sem ég hef skoðað botninn neðan frá og innan þá er ekki ryðblettur. Þessi bíll verður ekki daily driverinn hjá mér eftir að nýji bíllinn kemur á klakann og mun eyða megninu af vetrinum innandyra nema það sé enginn snjór/selta á götunum.
Annars verður nóg að gera í vetur, bæði í bílnum og einkalífinu.
Ég mun update-a þráðinn þegar hlutir berast í hús og reyna taka myndir af breytinga processinu
