Ég er að hugsa um að fá mér nýjan BMW þegar ég verð þrítugur (reyndar alveg tvö ár í það ennþá, en maður lætur sig dreyma þangað til...) þannig að ég hef aðeins verið að fikta á bmw.de og bmw.co.uk. Þar eru allar upplýsingar sem maður þarf, maður getur sett saman draumabílinn, séð myndir af mismunandi innréttingum, litum, felgum og allt þetta sem máli skiptir. Þið þekkið þetta eflaust
Hérna heima er bara grunnverðlisti á pdf-formi, aukahlutaverðlisti sem er merktur MY-2004 (!) og þegar maður smellir á BMW-configurator lendir maður bara á heimasíðu BMW umboðsins á Kýpur.
Annað sem mér finnst frekar hallærislegt er hérna, fyrir neðan línurnar er einhver lýsing á þeim (sem út af fyrir sig er hrikalega hallærisleg: "BMW 3 línan - Bara Bezt") en fyrir neðan 7, Z4 og M línuna stendur "Fæst aðeins með sérpöntun". Er það besta lýsingin sem þeim datt í hug á þessum línum?
Kannski finnst þeim þeir ekki þurfa að vera með góða heimasíðu fyrst þeir eru nú eina BMW-sjoppan á landinu, en ég held að það séu mistök. Fólk er farið að skoða flest ef ekki allt sem það kaupir á netinu fyrst; heimasíður fyrirtækja er oft svona "first impression" af vörunni.
Sumir segja kannski bara að maður eigi bara að fara í umboðið ef maður vill kynna sér staðal- og aukabúnað, verð og þess háttar. Jú, kannski, en ég fór upp í B&L um daginn og spurði sölumann hvort hann ætti verðlista yfir aukabúnað í 5-línunni og hann sagði bara pent "Nei".
Það væri gaman að heyra hvaða skoðun þið hafið á þessu.




