Ég lenti í því um daginn að bíllinn hjá mér varð rafmagnslaus, var með kveikt á ljósunum of lengi og allt dautt.
Þar sem ég er á Akureyri þá var ég ekki með mína almennilegu kapla og fékk því lánaða einhverja olís kapla hjá einhverjum og þeir dugðu ekki til að starta bílnum, hann rétt snéri en það var ekki nóg.
Anyway, reddaði mér stærri köplum og ég var búinn að reyna nokkrum sinnum með hinum. En með stærri gaurunum þá gekk þetta loksins.
Ekkert merkilegt svo sem, en eftir þetta er bíllinn búinn að vera svolítið leiðinlegur í gang. Venjulega hrökk hann strax í gang og ég þurfti ekkert að gefa honum inn eða neitt.
Núna finnst mér eins og hann svona rétt "koki" í gang, þarf að gefa honum aðeins inn og mér finnst eins og hann sé ekki alveg fullur(geymirinn)..
Hvað gæti hafa skeð þegar ég gaf bílnum start? Gætu kertin hafa skemmst einhvað eða ?
Öll komment velkomin..
Ahh eitt sem mér datt annað í hug,
Útaf því bíllinn er með álblokk, þarf ég þá einhvern sérstakann frostlög? Er er þessi blái bara í góðu lagi?

