Smá vesen,
bíllinn minn er rafmagnslaus, er að byggja mér sumarbústað í Öndverðarnesi. Var að slá upp á fullu í dag, með græjurnar í bílnum í botni, er með 2 x 1000 w bassabox sem sjúga gjörsamlega allt út af geyminum.
Þannig að ég spyr, ég vill helst ekki fá einhvern með startkapla hingað, hef heyrt að það geti eitthvað steikt tölvuna í þessum bílum. Þannig að, ég var að pæla, bíllinn stendur einmitt í slatta halla en vandamálið er að hann þarf að renna aftur á bak. Hvernig er það strákar, er hægt að þrykkja honum í gang í bakkgír niður brekku?
Með fyrirfram þökk,
með von um góð svör
Kv. Summi



Enn einn gullmolinn af kraftinum kominn 