Já, ég er alveg sannfærður um að þetta er ekki eðlilegt. Kannski ef ég væri með 15 ára gamalt tæki en þegar ég er á 2,5 ára gömlum BMW þá skal bara ekki vera eðlilegt að skapa þokubelti í kringum sig á hverjum einasta morgni (þegar útihitinn er meira að segja vel yfir 0°C) og missa fyllingarnar úr tönnunum sökum víbrings. Ef svo er þá verð ég fyrir miklum vonbrigðum! Get þá ekki ímyndað mér hvernig hann mun koma til með að hegða sér í vetur þegar það verður kalt á nóttunni. Annars þá prófaði ég í morgun að stíga út úr bílnum og skoða þennan blessaða reyk og hann er miklu hvítari en mér fannst úr baksýnisspeglinum. Þar sem liturinn á reyknum er víst eitthvað atriði þá er best að taka fram að hann er hvítur en ekki blár eins og ég taldi áður. Annars ætla ég að skoða það aftur í fyrramálið, maður er ekki sá skarpasti á þessum tíma dags.
Þakka annars ráðin varðandi hreinsunina á þessum síum. Það myndi þó þýða að ég þyrfti að opna húddið og actually gera eitthvað en þekking mín á því svæði takmarkast í raun við þau verk sem maður þarf engin sérstök áhöld til að framkvæma

Veistu nokkuð um einhverjar imbaheldar leiðbeiningar til að framkvæma þessa aðgerð sem þú lýstir?
Getur annars einhver sagt mér hvort að þegar rætt er um "injector" á spjallborðum erlendis þá sé það sama apparatið og þegar við tölum um "spíss"?
Annars sýnist mér enn sem komið er að það eina sem ég get gert sé að bíða eftir þessum blessaða tíma hjá TB og sjá hvort að spíssarnir séu virkilega að virka rétt eða ekki.