balancestöng e46

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

balancestöng e46

Postby DABBI SIG » Wed 05. Sep 2007 20:26

Sælir meistara,

Þannig er málið að þegar bíllinn hjá mér fór í skoðun þá kom það fram að balancestöng þyrfti að lagfæra, fékk ekki nákvæmari lýsingu á því. Koma fram óhljóð þegar bíllinn fer yfir ójöfnur t.d. slæmar hraðahindranir, og þá kemur hljóðið oftast frá hægra dekki. Bjóst við því að það væri balancestangarendinn. Ég fer og kaupi hann núna áðan dýrum dómi í B&L og var að klára að setja hann í. Fer síðan í prufurúnt og já ekkert skárra...
Hvað er málið að gera núna? Er fóðring á balancestönginni ónýt eða er þetta bara eitthvað annað, spindlar, stýrisendar eða what?

Væri þakklátur ef ég fengi góðar ábendingar.
Kv. Davíð Þór
MMC L200 38" 2001
BMW 328 e46 *Loadaður* 18" ljúft....SOLD
Suzuki Vitara ´97 Vetrarbíter...SOLD
Image
User avatar
DABBI SIG
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 377
Joined: Fri 27. Apr 2007 00:51
Location: tja...einhversstaðar að leika mér:D

Postby moog » Wed 05. Sep 2007 22:06

Er spyrnan í lagi hjá þér?

Ég er með svona hljóð vinstra megin í mínum bíl einfaldlega vegna þess að spyrnan er farin. Fyrri eigandi var búinn að skipta um hana hægra megin og tók balancestangarendann í leiðinni.

Allaveganna þá er hann alveg smooth hjá mér þeim megin sem er búið að endurnýja þetta bæði,,,
BMW 318i E46 1998 (Til sölu)
User avatar
moog
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1272
Joined: Mon 18. Aug 2003 13:57
Location: Reykjavík

Hljóð

Postby RamLing » Thu 06. Sep 2007 22:28

Þetta gæti verið aftari spyrnufóðringar að framan, balancestangar gúmmí eða balancestangarendi.

Spyrnufóðrinagrnar geta valdið skrölti, titring í stýri og skrítnum aksturseiginleikum.

Hef lent í því MJÖG oft að þurfa að skipta um aftari spyrnufóðringarnar á E46. Væri best fyrir þig að fá verkstæði til að skoða þetta nánar, eða eitthvern sem að hefur aðgang að lyftu og kunnáttu.

En ef þetta eru spyrnufóðringarnar þá er lang best að kaupa þær bara í B&L, þær koma með festingum og eru þaraðleiðandi Plug And Play
IC-464 Nissan Patrol '87 3.3TDI 44"
MO-406 Range Rover '91 3.9 V8-4sale
YM-577 Isuzu Trooper '99 3.0TDI 35"-SOLD
RR-291 GMC Jimmy '93 4.3 Vortec-SOLD
YK-403 BMW 523i '00 2.5-4sale
VS-544 Nissan Almera '00 1.8-SOLD
User avatar
RamLing
Kassabílstjóri
 
Posts: 182
Joined: Wed 21. May 2003 15:08
Location: Keflavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 22 guests