Nú er ég mikið að spá hvaða olíu ég ætti að setja á mótorinn á sjöunni>M30B35. Það var 15w40 á mótornum þegar ég keypti bílinn og setti ég 15w40 á hann tvisvar enda stóð í manualinum að það væri rétta olían, svo setti B&L 5w40 á mótorinn í Inspection II og útskýrðu þeir það þannig að olíurnar væru búnar að þróast aðeins á 16 árum. Þar sem að ég fílaði þá olíu ekki þá setti ég 10w40 á mótorinn þar á eftir.
Spurningin er því: Hvaða olíu ert þú að setja á M30B35 mótorinn þinn ??
Annars er ég búinn að kaupa 5w40 olíu á bílinn frá Esso, hún á að vera Ultra high performance, Synthetic, fljót að smyrja vélina í starti og er góð í miklum hita og kulda.
Og já ég hringdi í B&L um daginn og sagði eitt séníið þar að það væru svo margar týpur af olíu settar á þennan mótor
