Kvartmíla, síðasta keppni sumarsins 1. September

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Kvartmíla, síðasta keppni sumarsins 1. September

Postby ValliFudd » Mon 27. Aug 2007 22:28

SKRÁNINGARFRESTUR RENNUR ÚT Á FÖSTUDAGSKVÖLD!

Keppnin verður haldin sunnudaginn 2. September

Þetta er síðasta keppni sumarsins, nú vil ég sjá METÞÁTTÖKU!!!!! 8)

Svæðið opnar kl. 9:00
Mæting í síðasta lagi kl. 10:30
Skoðun hefst kl. 10:00 og er lokið kl. 11:00
Æfingaferðir hefjast kl. 11:00
Tímatökur hefjast kl. 11:30
Uppröðun kl. 12:30
Keppni hefst kl. 13:00
Verðlaunaafhending verður auglýst síðar í vikunni

Hægt er að skrá sig til keppni á netfang vallifudd@msn.com , einkapósti á kvartmila.is spjallinu eða síma 899-7110.
Það sem þarf að koma skýrt fram er nafn, kennitala, heimilisfang, ökutæki, símanúmer og flokkur sem á að keppa í.

Skráningu líkur á FÖSTUDAGSKVÖLD kl. 00:00 !

Bílar sem ekki eru á skrá verða að framvísa öryggisskoðunarvottorði frá Aðalskoðun þar sem Kvartmíluklúbburinn er með samning um að prófað verði bremsur og stýrisgangur. Þeir sem búa í sveitinni geta samið við viðkomandi skoðunarstöðvar um bremsu og stýristest.

Þeir sem eru með bíla sína á númerum og tryggða skulu koma með tryggingaviðauka sem gildir á kvartmílubrautinni.

Þeir sem eru yngri en 18 ára þurfa að framvísa leyfi frá foreldrum eða forráðamönnum.


Smá útskýring á flokkum fyrir þá sem ekki vita :)

OF: Flokkur fyrir sérsmíðaða spyrnubíla sem að gefur þeim forskot sem hafa litlar vélar eða þunga bíla. meira

GT: Flokkur fyrir götubíla smíðaða eftir 1980 og með samskonar vél og upprunalega en nánast allar tjúningar leyfðar, þó aðeins einn aflauki (túrbó, blásari, nítró) meira

GF: Flokkur fyrir götubíla, ótakmarkaðar tjúningar og vélarstærðir leyfðar meira

MC: Flokkur fyrir ameríska götubíla smíðaða fyrir 1985. Enginn aflauki leyfður og eingöngu venjuleg götudekk (engir götuslikkar) meira

RS: Flokkur fyrir götubíla smíðaða eftir 1980 með 6 cylendra eða færri og má nota aflauka á vélum minni en 2350cc. meira

SE: Flokkur fyrir götubíla með 8 cylendra vélar og á götuslikkum. Allar tjúningar leyfðar en enginn aflauki og hámarks vélastærð 515 kúbiktommur. meira

MS: Flokkur fyrir götubíla með 8 cylendra vélar og á litlum slikkum (28x9" hámark). Allar tjúningar leyfðar en enginn aflauki og hámarks vélastærð 560 kúbiktommur. meira

Sekúnduflokkar: Flokkar fyrir götubíla sem keyra á svipuðum tíma, menn mega ekki fara undir þann tíma sem að flokkurinn er gerður fyrir.
14,90 - 13,90 - 12,90 - 11,90 - 10,90


Image

Image

Image
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Fri 31. Aug 2007 22:03

JÆJA DRENGIR... HJÁLP! :D

Nú skrifa ég ekki sem kvartmíludúdd heldur sem kærasti! :lol:
Árný er EIN í 14,90 flokki... EINHVER hlítur að vilja keppa í 14,90...
Jónki t.d.. þú átt góðan sjens.. kominn mjög neðarlega.. Robbi.. Anyone :)
Ef einn skráir sig, fær hann bikar.. Þar sem það er bæði bikar fyrir 1. sæti og 2. sæti 8)

Koma svo... einhver..:)

Fyrsta keppni er frí, og fæstir hér hafa keppt.. svo það kostar ekkert fyrir flesta :naughty:

Jú það þarf náttúrulega að vera meðlimur í KK en það eru það margir hérna.. t.d. allir sem mættu á BMW-daginn á brautinni...;)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Einarsss » Fri 31. Aug 2007 23:18

sorrý en ég hef mun meiri áhuga á að eyða mínum tíma uppá aksturbraut ;)
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Aron Andrew » Sat 01. Sep 2007 02:38

Ég myndi mæta ef bíllinn min væri í standi :?
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Svenni Tiger » Sat 01. Sep 2007 10:24

ég myndi mæta ef ég væri ekki að keppa á Norðurlandamótinu í frjálsum ákkurat núna um helgina :lol:
BMW E39 M5 01' [2 FAST]
BMW 745i 02' [WISH]
Range Rover Sport Supercharged 06' [NR1DAD]
41 Other's Sold
User avatar
Svenni Tiger
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1257
Joined: Thu 21. Sep 2006 09:20
Location: Örugglega hlaupandi

Postby Robbi318is » Sat 01. Sep 2007 11:56

er maður ekki of seinn að skrá sig núna. Langar að taka þátt..
E30 325 coupe
Robbi318is
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 252
Joined: Tue 20. Dec 2005 19:52
Location: Grafarvogur

Postby Ingsie » Sat 01. Sep 2007 12:00

Robbi318is wrote:er maður ekki of seinn að skrá sig núna. Langar að taka þátt..


Prófaðu að hringja í Valla 899-7110. :wink:
E21 - E30 - E36
User avatar
Ingsie
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1525
Joined: Sun 14. May 2006 14:00
Location: Hér & þar

Postby Robbi318is » Sat 01. Sep 2007 12:22

Jæja, þá er búið að skrá kallinn..
E30 325 coupe
Robbi318is
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 252
Joined: Tue 20. Dec 2005 19:52
Location: Grafarvogur

Postby Misdo » Sat 01. Sep 2007 14:48

ætli það verði ekki grenjandi rigning ámorgun eins og í dag :x
Stefán Haukur
VW Golf MKV Gti
VW Golf MK4 seldur
BMW E36 323i Seldur
Honda Civic Seldur
BMW 318ia E36 rifinn
You'll Never Walk Alone
User avatar
Misdo
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1586
Joined: Thu 23. Nov 2006 22:36

Postby Benzari » Sat 01. Sep 2007 14:52

nei, fínt veður á morgun 8)
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Sat 01. Sep 2007 15:16

User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 71 guests