Önnur stúlka, sem var líka að gera vinum sínum greiða, kom við sögu lögreglujjar á dögunum. Sú er aðeins 14 ára en stúlkan ók bíl foreldra sinna á bílskúrshurðina heima hjá þeim. Af því hlutust töluverðar skemmdir en upphaflegur tilgangur bílferðarinnar var að fara út í sjoppu. Þangað ætlaði stúlkan að aka nokkrum vinum sínum en enginn í hópnum nennti að ganga þá leiðina.
