haha það er eitthvað við það að ég hlæ bara af mistökum og svona rugli...
enda buinn að skoða netið einsog það leggur sig með mistakes og detti video... haha
gstuning wrote:Eitt fyndið og ekki fyndið,
Vorum í skúrnum hjá stefáni að setja gírkassa á vél,
vorum að mjaka honum á þegar alltí einu missir einhver gripið eða eitthvað og gírkassinn og einn risa stál plata húrrast niður og næstum á okkur,
Hefði sko getað farið illa!
///M wrote:gstuning wrote:Eitt fyndið og ekki fyndið,
Vorum í skúrnum hjá stefáni að setja gírkassa á vél,
vorum að mjaka honum á þegar alltí einu missir einhver gripið eða eitthvað og gírkassinn og einn risa stál plata húrrast niður og næstum á okkur,
Hefði sko getað farið illa!
eða þegar þú settir slavinn skakkan í, ýttir á kúplinguna og pinninn húrraðist inn í kassann, enduðum á að borga gat á kassan til að ná pinnanum úr



íbbi_ wrote:vorum að taka gírkassan úr camaronum mínum í fyrra, ég og annar member af spjallinu,
vorum voða faglegir með gírkassatjakkin undir og áttum í erfiðleikum með að ná kassanum aftur og öxlinum úr pressuni. og þurftum á endanum að hrista hann eins og vitleysingar og þegar hann poppaði af þá rann hann af tjakknum og herra Ojohnons ´fékk hann beint í fangið og tók alveg "HEMAN-inn" á þetta og hallaðist vle aftur en náði að halda honum en þegar hann hallaðist aftur lak öll olían af kasasum beint í fangið á honum og yfir hann allann.. ég hló svo mikið að ég átti erfitt með mig..
Danni wrote:
Svo eitt skipti var ég búinn að vera að vinna í 540 þegar alternatorinn gaf sig. Þurfti að færa bílinn aðeins eftir að hann var búinn að vera þarna ógangfær í 1 dag, hafði byrjað deginum áður. Jæja ég byrja á að læsa stýrinu í beinni stöðu og set hann svo í N og tek úr handbremsu. Byrja að ýta, einn. Ég vissi að önnur hliðin var í góðum málum sem ég leit meðfram hinni hliðinni til að vera viss um að hann væri ekki að beygja eða fara utaní eitthvað. Jæja allt er í góðu og ég held áfram að ýta en fylgist með hliðinni. Svo þegar ég er búinn að ýta ca helminginn af leiðinni þá allt í einu er ekki neitt undir mér þar sem ég stíg og ég einsog asni HRUNDI ofaní grifju! Þá hafði ég lokað bara hálfri grifjunni þegar ég hætti kvöldið áður svo að enginn myndi detta ofaní ef þörf væri að fara fyrir framan bílinn. Ég endaði bara frekar ruglaður ofaní grifju að spá í hvað í andskotanum hafði gerst og með STÓRAN marblett á höndinni. Hefði getað farið verr samt

Stanky wrote:Var einusinni að skipta um coilovers....
ég las Rieger bækling á meðan....
...Gunni og stebbi unnu....
....svo borðaði ég hamborgara.... las meira.....
gstuning wrote:Ég og þú skulum gifta okkur svo ég geti komist á þennan 2002 turbo
Users browsing this forum: No registered users and 30 guests