fyndnar sögur af bilaviðgerðum

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

fyndnar sögur af bilaviðgerðum

Postby Astijons » Tue 28. Aug 2007 18:19

já komið með eitthverjar fyndnar... þegar huddið datt ofan á ykkur og þið voruð fastir í nokkra tima eða eitthvað...


ég skal segja ykkur söguna þegar ég ákvað að taka málin í minar hendur og skipta um startarann í 316...

GOOOSSHH! haha sá á netinu að einhver tók loftinnsogs ruglið af og skipti um þannig... sem mér fannst sniðugt því boltinn var beint undir þar og ekki sjens að komast í það útaf viraflækjum og soggreinum og rugli...

svo byrjuðum við að rífa... haha svo voru nátturlega allir virarnir ólosanlegir bara beintengt upp í allt svo virarnir fóru ekkert í burtu og náðum að færa soggreinarnar aðeins... svo var bara barátta uppá lifs og dauða... hendurnar rispaðar niður í 32mm í ummál... og sár og leiðindi ... byrjuðum klukkan 20... og klukkan 02 var hann kominn í ... og þá var startað og hann startaði ... eennn neeei einhver af þessum vírum svo við ákvöðum að við myndum bara muna... voru vitlausir svo við fórum heim að sofa ...

svo næsta dag ákvöðum við að fara í þetta og koma drekanum í gang... tókum soggreinar af og rifum í sundur ... blasti við okkur eitt viratengi... (sem er by the way eina tengið sem maður sér ef maður kikjir bara ofan í(annars þarf maður að skima undir og yfir)) já og það var bara ótengt...

tengdum og settum saman ... og vruumm einsog smjör...
(kannski ekkert fyndinn saga en þið eigið að koma með fyndnar ég var bara að brjóta ísinn)

þetta byrjaði allt á því að það var svo auðvelt að skipta um dempara aftur í ... :oops:

eennn ég læt óvin minn skipta um startara næst það er á hreinu
Astijons
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1035
Joined: Sun 29. Oct 2006 22:38

Postby maxel » Tue 28. Aug 2007 19:42

hehe vorum einusinni heillengi að reyna ná 316i í gang...virkaði ekert,reyndum allt, eftir nokkra tíma sá einhver að tölvan var ótengd, svo settum við einu sinni nýja pönnu undir 320i, var eitthvað brotið stykki þarna og hentum þessu undir og vorum frekar þreyttir, ok gekk illa, nenntum þessu ekki, hættum kl3, svo seinna með "orku" til að hugsa föttuðum við að þetta var olídælan settum undir og vá hvað það hrundi undan bílnum af verkfærum sem höfðu gleymst þarna inni vélasalnum, ekkert spes, en langaði bara vera með :D
maxel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5844
Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45

Postby Steini B » Tue 28. Aug 2007 19:54

Þótt ég sé svoddan newbie í viðgerðum á bílum þá hefur allt gengið nokkuð vel hjá mér... :)

Nema reyndar þegar ég skipti um olíu á E39 þá stóð ég með fötuna
Beint fyrir neðan aftöppunargatið meðan ég skrúfaði tappan úr.
Svo þegar hann fór úr þá auðvitað spíttist olían út á hlið og ekkert nema smurolía útum allt... :lol:
User avatar
Steini B
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3836
Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Location: Vík í Mýrdal

Postby aronjarl » Tue 28. Aug 2007 21:46

Var einhvertiman að stilla hæðina á coiloverinu á Hondu sem ég átti.

búin að skrúfa þetta og mæla voða nákvæmt, svo er þetta svo mikið drast að þetta skrölltir þegar bíllinn er alveg tjakkaður upp.
(gormurinn svo stuttur)

þannig ég ákvað einhvernveginn að setja hendina utanum gorminn og finna hvort hann settist ekki örugglega rétt, svo slaka ég bílnum niður með tjakk (rólega) (sem betur fer) auðvitað er ekert helvítis pláss fyrir hendina á mér þegar bíllnn fer niður.. hendinn verður á milli dekk og brettis og ekki neitt fast heldur AÐEINS meira...! shit þetta var svo vont...

ég hamaðist við að skrúfa fyrir tjakkinn og tjakka með annari hendi alveg eins og skítur....!

bógnaði aðeins á hendinni..

segir bara að maður er stundum ekki alltaf að hugsa um það sem maður er að gera... :roll:
Aron Jarl Hillerz
1987 BMW e30 M-tech I Turbo (400+hp / 600+nm)
1990 Civic EF B18C6 (190hp)
1997 Subaru Legacy (winter)
1973 Malaguti Bolognia 49cc (2hp)
Go-Kart Rotax 125cc
User avatar
aronjarl
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4044
Joined: Sun 07. Dec 2003 17:36
Location: undir bíl eða ofaná kellingu..

Postby Astijons » Tue 28. Aug 2007 22:15

haha ...
"kallarnir" hérna þora ekki að segja orð ...

gera kannski ekki mistök;P :lol:
Astijons
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1035
Joined: Sun 29. Oct 2006 22:38

Postby Einarsss » Tue 28. Aug 2007 23:19

fyndnasta sem ég veit um í bílaviðgerðum er Árni Björn :lol:
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby arnibjorn » Tue 28. Aug 2007 23:19

einarsss wrote:fyndnasta sem ég veit um í bílaviðgerðum er Árni Björn :lol:

:squint:

:lol: :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Stanky » Tue 28. Aug 2007 23:27

Var einusinni að skipta um coilovers....

ég las Rieger bækling á meðan....

...Gunni og stebbi unnu....

....svo borðaði ég hamborgara.... las meira.....
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby gunnar » Tue 28. Aug 2007 23:51

Þegar ég var að breyta jimny dollunni minni var ég með bílinn upp á stórri fjögurra pósta lyftu þannig ég gat ýtt bílnum fram og til baka á henni, þurfti einhvað að færa bílinn aftur á bak og hann var á hlutlausum, ýtti örlítið og valtaði yfir símann minn sem var hinum meginn á lyftunni.. Good times..
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Svezel » Tue 28. Aug 2007 23:58

var að skipta um síu og olíu á skiptingunni í 750. búinn að húrra öllu saman og er að skríða undan bílnum. stend upp og sé eitthvað ógeð í pappír ofaná vélinni....ohh fatta að ég gleymdi að setja seglana aftur í pönnuna :x þarf að rífa ógeðið allt undan aftur

var að setja kassann aftur undir roadster með hjálp Inga. erum að prófa að fikta í gírunum en eigum í einhverjum vandræðum með að koma bílnum í gír, hey best að stíga á kúplinguna--------> þrællinn liggur á gólfinu => húrrast í sundur og fer næstum í augað á Inga....BARA hálfviti :lol:
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby SteiniDJ » Wed 29. Aug 2007 00:00

Þegar ég var polli (4-6 ára), ákvað ég að reyna finna hvað það væri sem var að skrölta aftan í skotti á Saabinum hennar. Ég opna skottið og náttúrulega veit ekkert hvað ég er að gera ákveð ég að fara alveg í skottið. Það var eitthvað bilað og lokast á mig og ég ligg þarna fastur aftan í skotti á Sedan saab.

Þetta var frekar heitt sumar - sólin skein og læti og amma gamla heyrir náttúrulega ekki neitt þegar ég reyni að öskra. Var fastur þarna í um 3 - 4 tíma, bara með 7up blandað í eitthvað áfengt, sem kom manni alveg af stað. Svo loksins fannst maður, með gífurlegan hausverk og með hitasótt. Sjúkrabíll og læti 8)

Myndi flokka þetta undir bílaviðgerðir ;D
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Postby Astijons » Wed 29. Aug 2007 00:01

SteiniDJ wrote:Þegar ég var polli (4-6 ára), ákvað ég að reyna finna hvað það væri sem var að skrölta aftan í skotti á Saabinum hennar. Ég opna skottið og náttúrulega veit ekkert hvað ég er að gera ákveð ég að fara alveg í skottið. Það var eitthvað bilað og lokast á mig og ég ligg þarna fastur aftan í skotti á Sedan saab.

Þetta var frekar heitt sumar - sólin skein og læti og amma gamla heyrir náttúrulega ekki neitt þegar ég reyni að öskra. Var fastur þarna í um 3 - 4 tíma, bara með 7up blandað í eitthvað áfengt, sem kom manni alveg af stað. Svo loksins fannst maður, með gífurlegan hausverk og með hitasótt. Sjúkrabíll og læti 8)

Myndi flokka þetta undir bílaviðgerðir ;D


hahahhahahhahha

hahhahaha

blindfullur 4 ára fastur ofan í skotti... gott fyrsta fyllerí...
Astijons
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1035
Joined: Sun 29. Oct 2006 22:38

Postby gstuning » Wed 29. Aug 2007 00:03

Eitt fyndið og ekki fyndið,

Vorum í skúrnum hjá stefáni að setja gírkassa á vél,
vorum að mjaka honum á þegar alltí einu missir einhver gripið eða eitthvað og gírkassinn og einn risa stál plata húrrast niður og næstum á okkur,

Hefði sko getað farið illa!
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby maxel » Wed 29. Aug 2007 00:03

SteiniDJ wrote:Þegar ég var polli (4-6 ára), ákvað ég að reyna finna hvað það væri sem var að skrölta aftan í skotti á Saabinum hennar. Ég opna skottið og náttúrulega veit ekkert hvað ég er að gera ákveð ég að fara alveg í skottið. Það var eitthvað bilað og lokast á mig og ég ligg þarna fastur aftan í skotti á Sedan saab.

Þetta var frekar heitt sumar - sólin skein og læti og amma gamla heyrir náttúrulega ekki neitt þegar ég reyni að öskra. Var fastur þarna í um 3 - 4 tíma, bara með 7up blandað í eitthvað áfengt, sem kom manni alveg af stað. Svo loksins fannst maður, með gífurlegan hausverk og með hitasótt. Sjúkrabíll og læti 8)

Myndi flokka þetta undir bílaviðgerðir ;D
:shock:
maxel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5844
Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45

Postby xtract- » Wed 29. Aug 2007 00:04

Hmmm... var að skipta um olíu á millikassa á Musso minnir mig, tappaði af, og ætlaði svo að dæla í gegnum hæðartappann nema hvað að ég setti stútinn í einhverja solid holu, og furðaði mig afhverju í ósköpunum það fór alltaf allt útum allt.
xtract-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 844
Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Location: Akureyri

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 69 guests