Sælir strákar.
Ég fór með M3 í umboðið fyrir helgi og lét taka inspection, skipta um olíur á mótor, kassa og drifi, auk þess sem þeir skiptu um kertin.
Hann hefur bara verið notaður stuttar vegalengdir síðan og virkað fínt, en í gær og í dag fór hann að láta verulega illa þegar hann hitnar. Fyrst byrjar hann að ganga á 2000-3000 rpm og fretar ef maður gefur inn, svo deyr hann. Ef maður nær honum upp á snúning er krafturinn ógurlegur.
Hljómar fyrir mig eins og hann gangi "lean" þegar hann hitnar.
Mér datt í hug að þeir hafi sett röng kerti í hann, getur það verið?


