Ég vill kynna til sögunnar E30 325 1989 eða öllu heldur ætti hann að vera 1991 árg þar sem hann fór á götuna þá. Hlynurst átti þennan bíl og flutti hann inn árið 2004 held ég.
Búið er að skipta um fjöðrun í bílnum og er hann með Koni sport og IE stage III gorma ásamt e46 m3 afturdemparafóðringum, poly subframe fóðringum, z3 skiptiarm (shortshifter í e30).
Fór uppá braut í gærkvöldi og verð að segja að það var algjör snilld, Vélin togar alveg þokkalega og skilar sínu afli vel miðað við m20b25

, Virkilega gaman að keyra bílinn so far og á gott dempara/gormakombo hlut þar á
Bíllinn sjálfur er með AC schnitzer kitti og felgum, sportstýri(ekki viss hvað þetta heitir?), topplúgu, stóru aksturtölvunni, leðruðum hurðarspjöldum og einhverjum græjum með magazíni.
Hann er mjög krúttlegur (segir konan).
Ég get auðvitað ekki átt e30 án þess að modda hann þannig að ég er að fara panta strutbrace, poly fóðringar í: mótorpúða, gírkassa og afturspyrnur ásamt 25/22mm stillanlegu swaybar kitti og allt frá bmw2002.com ... þetta verður pantað sennilega í kvöld (ef einhver vill vera með í pöntun þá senda mér PM og borga fyrirfram)
Ég er líka búinn að fjárfesta í splunkunýjum bottlecaps og 14" dekkjum til að drepa uppá braut verður gerð góð tilraun til þess á morgun.
Tek nýrri myndir í kvöld eftir að ég er búinn að bóna með meguiars
Hérna eru nokkrar myndir frá Hlyni


