Ástandsskoðun á BMW

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Ástandsskoðun á BMW

Postby thisman » Thu 23. Aug 2007 10:57

Góðan dag!

Er að skoða kaup á BMW 320d Touring 2002 módel og er að velta fyrir mér hvort betra sé að fara með hann í Frumherja eða hreinlega panta tíma hjá TB? Einhver með reynslu af slíku og veit þá kannski hvað TB getur farið yfir sem Frumherji getur ekki, og vice versa?

Hver er annars skoðun ykkar á endingu á svona bíl, hann er ekinn 157 þús sem er margfalt meira en ég myndi sætta mig við í flestum bílum - en er ekki séns að ég geti rúllað á þessu í 1-2 ár án teljandi vandræða?
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Postby Schulii » Thu 23. Aug 2007 12:44

320d ekinn 157 þúsund er EKKI mikill akstur. Þ.e.a.s ef bíllinn er með góða þjónustubók þar sem sést að hann hefur verið smurður reglulega og farið í Inspection I og II á réttum tíma OG lítur vel út OG er góður í akstri.
Ég var að selja 320d 2002 árgerð sem var keyrður eitthvað milli 170 og 180 þúsund kílómetra og hann var í algjöru TOPP-standi.
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests