Það er löngu kominn tími til þess að kynna "næst" nýjasta bílinn, fékk þennan til landsins fyrir um mánuði síðan.
Um er að ræða Corvette C6 Z51 árgerð 2005, bíllinn er hrikalega vel með farinn og í raun eins nýr þar sem hann er einungis ekinn 11 þúsund mílur. Ég tók að sjálfsögðu Daytona sunset orange metallic litinn en það er að mínu fallegasti litur sem GM hefur boðið uppá

Ég pantaði built sheet nýlega og það var ekkert flókið, bíllinn var einfaldlega tekinn með öllum fáanlegum aukabúnaði fyrir utan navi og sjálfskiptingu sem eins og allir vita er hinn versti óþarfi. Það er margt skemmtilegt sem hefur verið borgað af fyrsta eiganda eins og t.d. museum delivery en þá er bíllinn afhentur eigandanum á National Corvette museum við hátíðlega athöfn

Það hefði verið skynsamlegra hjá honum að spara ruglið þar þar sem bíllinn kostaði nýr hátt í það sem Z06 byrjar í
Bíllinn er auk þess bæði með Z51 pakka og 3 LT pakka, hér að neðan má sá hvað Z51 pakkinn felur í sér:
The Z51 package has different springs, shocks and stabilizer bars. It also has oil coolers for the power steering and transmission. Larger, cross-drilled brake rotors, specific Goodyear F1 'Supercar' tires, performance gear ratios for the manual transmission and a different rear axle ratio for the automatic also come with the Z51.
Þessi bíll er klárlega ein vangefnasta græja sem ég hef komist í tæri við og er þar nokkrir Turbo Porsche meðtaldir. Bíllinn er með 6 lítra LS2 vél, 400 hestöfl og nær 100 km hraða á 4,3 sek. Ég held að uppgefinn 1/4 mílutími sé 12,6
Nóg af blaðri myndir segja meira en þúsund orð

ArnarFB tók þessar glæsilegu myndir

_________________
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991
Nikolai Smolenski wrote:
Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual