Vantar ás/touring þrist í staðinn fyrir Ford Explorer 2004

Hér getur þú auglýst eftir BMW bílum.

Vantar ás/touring þrist í staðinn fyrir Ford Explorer 2004

Postby thisman » Tue 21. Aug 2007 16:33

Er með Ford Explorer XLT 2004 árgerð, ekinn 58 þúsund km og langar að skipta á honum og annað hvort diesel ás eða diesel þrist (touring) sem hefur ekki verið keyrður til helvítis og er ekki eldri en 2003. Það er áhvílandi á bílnum 2505 þús (síðasta afborgun 36 þúsund) og best væri að skipta einfaldlega á lánum.

Bíllinn er í toppstandi og nýbúinn að fara í gegnum allsherjar úttekt hjá Brimborg þar sem farið var yfir og skipt um fóðringar, pakkdósir, jafnvægisstöng og skynjara. Eina sem ég get sett út á bílinn er að leðrið í hliðunum á sætunum er farið að láta á sjá (virðist hrjá þessa týpu af Ford Explorer hvað sem veldur) en að öðru leyti er hann gullfallegur og ljúfur í alla staði.

Aukabúnaður er dráttarbeisli, stigbretti og leðuráklæði en þess utan þá er þessi týpíski staðalbúnaður í amerískum, s.s. sjálfskipting, cruise control, loftkæling, sjálfvirkur dimmer í spegli, geislaspilari, skyggðar rúður í aftari gluggum, fjarstýrðar samlæsingar o.s.frv. Bíllinn er á mjög góðum og grófum heilsársdekkjum.

Image

Frekari upplýsingar hjá Alla í síma 8980179.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Return to Vil kaupa - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests