Leikdagur 13 og 14.

Hér skal spjalla um BMW.

Leikdagur 13 og 14.

Postby Porsche-Ísland » Tue 07. Aug 2007 15:13

Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka , reyna að fá hann bara fyrir allt árið og þá eru tryggingarsölumennirnir lausir við ykkur það sem eftir er árs.

Vinsamlegast farið varlega á malarveginum.



En annars er bara stöðluð auglýsing.

Föstudagskvöldið 10. Ágúst verður leikdagur á Rallykross brautinni.

Brautin verður opin frá 20 og frameftir.

Síðan verður aftur leikdagur Sunnudaginn 12. Ágúst og þá frá 10 um morguninn og fram eftir degi.


Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna.

Eknir eru 5 hringir í einu.
Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.

Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 5000 kr. meðlima gjald og síðan verður 1000 kr. gjald fyrir hvern dag eftir það.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. / / 2007


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala
Halldór Jóhannsson
Porsche 944 Turbo S '89
Porsche 924 Turbo '81
Porsche Boxster S '02
Audi A6 Quattro Avant '96
User avatar
Porsche-Ísland
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 409
Joined: Fri 28. Jan 2005 17:47
Location: Reykjavík

Postby Aron Andrew » Tue 07. Aug 2007 16:02

Stefnir í að ég taki run 8)
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby HPH » Tue 07. Aug 2007 16:11

Aron Andrew wrote:Stefnir í að ég taki run 8)
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.
User avatar
HPH
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3209
Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Location: inn í bílnum þínum.

Postby Raggi M5 » Tue 07. Aug 2007 16:58

Eru menn frekar að fara á þetta heldur en uppá mílu á föstudeginum, þeas ef viðrar ?
E39 525d Touring ´03
Toy Yaris T-Sport ´02
Yamaha R1 ´05


Alpina wrote:M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......
User avatar
Raggi M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3236
Joined: Wed 04. Sep 2002 22:02
Location: Njarðvíkingur!

Postby Aron Andrew » Tue 07. Aug 2007 16:59

Raggi M5 wrote:Eru menn frekar að fara á þetta heldur en uppá mílu á föstudeginum, þeas ef viðrar ?


Já klárlega :)

Að mínu mati mun meira spennandi!
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Alpina » Tue 07. Aug 2007 17:20

Raggi M5 wrote:Eru menn frekar að fara á þetta heldur en uppá mílu á föstudeginum, þeas ef viðrar ?


þetta er bæði og
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby zazou » Tue 07. Aug 2007 18:39

Aron Andrew wrote:
Raggi M5 wrote:Eru menn frekar að fara á þetta heldur en uppá mílu á föstudeginum, þeas ef viðrar ?


Já klárlega :)

Að mínu mati mun meira spennandi!

Hvað heldurðu maður 8)
Nú má alveg fara að koma blautur leikdagur.
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby Hannsi » Tue 07. Aug 2007 23:12

úff bíllinn hjá mér er skuggalega laus að aftan í bleitunni :o

þarf lítið sem ekkert til svo maður spóli.
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby Aron Andrew » Tue 07. Aug 2007 23:28

Það verður eitthvað fyrir alla um helgina, veðurspáin segir rigning á föstudag en blingin veður restina af helginni 8)
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby fart » Wed 08. Aug 2007 09:17

Getur einhver lánað mér bíl :lol:
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby HPH » Wed 08. Aug 2007 13:03

fart wrote:Getur einhver lánað mér bíl :lol:

Ég skal lána þér minn ef ég fæ að prufa þinn á nordslafen :lol:
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.
User avatar
HPH
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3209
Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Location: inn í bílnum þínum.

Postby Alpina » Wed 08. Aug 2007 21:21

fart wrote:Getur einhver lánað mér bíl :lol:


Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby ta » Wed 08. Aug 2007 23:58

fart wrote:Getur einhver lánað mér bíl :lol:


'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45

Postby ValliFudd » Thu 09. Aug 2007 23:01

fart wrote:Getur einhver lánað mér bíl :lol:

já, ég er á spáni svo ég þarf minn ekki :lol:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Porsche-Ísland » Fri 10. Aug 2007 18:40

Veðurfræðingar lofa góðu veðri í kvöld,, einn og einn skúr gæti sést en hvað um það.

Farinn upp á braut. Sjáumst.
Halldór Jóhannsson
Porsche 944 Turbo S '89
Porsche 924 Turbo '81
Porsche Boxster S '02
Audi A6 Quattro Avant '96
User avatar
Porsche-Ísland
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 409
Joined: Fri 28. Jan 2005 17:47
Location: Reykjavík

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 20 guests

cron