Ég er með 540 E-39 sem er með svona sjónvarpi "4.3", gps, útvarpi, síma og einhvað meira.
Vandamálið er með útvarpið .. það á það til að slökkva bara á hljóðinu annað slagið og stundum kemur það aftur með því að slökkva og kveikja aftur en stundum ekki.
þetta virðist helst gerast þegar maður keyrir yfir ójöfnur en stundum þegar bíllinn er alveg kjur.
Ég er búinn að rífa allt í sundur þarna í skottinu og fara yfir tengingar.
Hvað er að ?



